„Jens Kristinsson (Miðhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Jens Kristinsson (Miðhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Jens Kristinsson frá Miðhúsum.jpg|thumb|250px|''Jens Kristinsson.]]
'''''<big>Kynning.</big>'''''
'''''<big>Kynning.</big>'''''



Útgáfa síðunnar 24. september 2013 kl. 14:37

Jens Kristinsson.

Kynning.

Jens Kristinsson fæddist 13. september 1922.
Foreldrar hans voru Kristinn Ástgeirsson á Miðhúsum, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, og kona hans Jensína María Matthíasdóttir, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík í Færeyjum, d. 28. maí 1947.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Jens er ógiftur (1954, nóvember) og barnlaus.
Jens er lágur vexti, og smávaxinn, ljóshærður, skapléttur og skemmtilegur. Hann er snar og léttur í hreyfingum, fylginn sér og þolinn. Veiðimaður er Jens ágætur, enda þótt ungur sé í þeirri íþrótt, góður viðlegufélagi og ósérhlífinn og iðinn.
Eflaust á Jens eftir að þjálfast meir í veiðum og verða skeinuhættur keppinautur þeirra, sem eldri og æfðari eru í veiðistörfum.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir