„Elín Jónsdóttir (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Elín Jónsdóttir''' frá Oddsstöðum, húsfreyja á Helluvaði á Rangárvöllum, fæddist 10. nóvember 1856 og lést 12. apríl 1911.<br> Foreldrar hennar voru [[...) |
m (Verndaði „Elín Jónsdóttir (Oddsstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 10:48
Elín Jónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja á Helluvaði á Rangárvöllum, fæddist 10. nóvember 1856 og lést 12. apríl 1911.
Foreldrar hennar voru Jón Þorgeirsson bóndi á Oddsstöðum, f. 1808, d. 6. júní 1866, og síðari kona hans Margrét Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919.
Elín var fjögurra ára með foreldrum sínum á Oddsstöðum 1860, 15 ára niðursetningur í Eyjum 1870.
Hún var vinnukona hjá Aagaard sýslumanni og konu hans Agnesi. Agnes skrifar um styrkjandi samskipti við Elínu í leiðindum sínum í fásinninu í Eyjum á árum sínum þar (sjá heimildir).
Þau Jónas giftu sig 1882 og hófu búskap á Helluvaði 1883. Hún bjó þar til dánardægurs 1911, en Jónas bjó þar til ársins 1923.
Maður Elínar, (6. janúar 1882), var Jónas Ingvarsson bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. september 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924 á Helluvaði.
Börn Elínar og Jónasar voru:
1. Kristín Rósa Jónasdóttir, f. 15. nóvember 1882, d. 1. júní 1958, gift Jóni Sigmundssyni sjómanni í Reykjavík, en síðar Guðmundi Andréssyni gullsmið í Reykjavík.
2. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja í Skuld, f. 23. nóvember 1883, d. 28. apríl 1960, gift Sigurði Pétri Oddssyni útgerðarmanni, f. 28. mars 1880, d. 10. maí 1945.
3. Júlíana Jónasdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. júlí 1891, gift Ísleiki Þorsteinssyni söðlasmið.
4. Jónína Jónasdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. mars 1895, gift Jóni Sigurðssyni skipstjóra.
5. Jónas Jónasson skósmiður í Reykjavík, f. 27. september 1897, fyrst kvæntur Mínervu Jósteinsdóttur, síðan Þórunni Hjálmarsdóttur, en síðast Gertrud Ritzhaupt.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum: Úr dagbókarblöðum Agnesar Aagaard, sýslumannsfrúar í Vestmannaeyjum.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.