„Hinrik G. Jónsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Hann var í stjórn [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags Vestmannaeyja]] 1930-1947 ásamt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum hér í Eyjum og á öðrum stöðum. | Hann var í stjórn [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags Vestmannaeyja]] 1930-1947 ásamt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum hér í Eyjum og á öðrum stöðum. | ||
Kona Hinriks hét [[Unnur Magnúsdóttir]]. Hinrik lést 19. mars 1965. | Kona Hinriks hét [[Unnur Magnúsdóttir (Sólvangi)|Unnur Magnúsdóttir]]. Hinrik lést 19. mars 1965. | ||
== Myndir == | == Myndir == |
Útgáfa síðunnar 14. desember 2020 kl. 17:49
Hinrik G. Jónsson fæddist 2. janúar 1908 í Vestmannaeyjum og var nefndur Hinrik Guðmundur. Foreldrar hans voru Jón Hinriksson framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og kona hans Ingibjörg Rannveig Theódórsdóttir Mathiesen frá Hafnarfirði.
Hinrik lauk stúdentsprófi í Reykjavík árið 1928 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann var framkvæmdastjóri Kf. Fram í Eyjum 1929-1933. Málflutningsmaður í Vestmannaeyjum frá 1. júlí 1936 þar til hann var kosinn bæjarstjóri í mars 1938. Eftir bæjarstjórastörf sín vann hann við lögfræðistörf í Eyjum í tvö ár. Þá lá leið hans á Neskaupstað þar sem hann var bæjarfógeti í tvö ár. Hinrik var sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu árið 1949 og gegndi því embætti til æviloka.
Hann var í stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja 1930-1947 ásamt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum hér í Eyjum og á öðrum stöðum.
Kona Hinriks hét Unnur Magnúsdóttir. Hinrik lést 19. mars 1965.
Myndir
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.