„Hannes Hreinsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 4509.jpg|thumb|250px|Hannes]] | [[Mynd:KG-mannamyndir 4509.jpg|thumb|250px|Hannes]] | ||
'''Hannes Hreinsson''' fæddist í Selshjáleigu í A-Landeyjum 2. okt. 1892 d. 28. maí 1983, sonur Hreins Skúlasonar frá Hólmum (f. 1861 d. 1904), og konu hans Þórunnar Guðmundsdóttur (Diðrikssonar frá Hólmi) f. 1864. Seinni maður Þórunnar var [[Þorsteinn Gíslason f. 1865 | '''Hannes Hreinsson''' fæddist í Selshjáleigu í A-Landeyjum 2. okt. 1892 d. 28. maí 1983, sonur Hreins Skúlasonar frá Hólmum (f. 1861 d. 1904), og konu hans [[Þórunn Guðmundsdóttir (Hæli)|Þórunnar Guðmundsdóttur]] (Diðrikssonar frá Hólmi), f. 1864. Seinni maður Þórunnar var [[Þorsteinn Gíslason (Hæli)|Þorsteinn Gíslason]], f. 1865, d. 1954, bóndi í Hallgeirseyjarhjáleigu. Þorsteinn vann hjá Ísfélagi Vestmannaeyja eftir að hann flutti til Eyja 1921. Þórunn og Þorsteinn eignuðust tvo syni, Elías Ársæl sem lést ársgamall og Jóhann Kristin efnafræðing, sem lærði málaraiðn hjá [[Engilbert Gíslason|Engilbert Gíslasyni]] í Eyjum en vann lengst af hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu Reykjavík. | ||
Hannes flutti til Eyja á fyrri hluta 20. aldar. | Hannes flutti til Eyja á fyrri hluta 20. aldar. |
Útgáfa síðunnar 11. apríl 2017 kl. 16:34
Hannes Hreinsson fæddist í Selshjáleigu í A-Landeyjum 2. okt. 1892 d. 28. maí 1983, sonur Hreins Skúlasonar frá Hólmum (f. 1861 d. 1904), og konu hans Þórunnar Guðmundsdóttur (Diðrikssonar frá Hólmi), f. 1864. Seinni maður Þórunnar var Þorsteinn Gíslason, f. 1865, d. 1954, bóndi í Hallgeirseyjarhjáleigu. Þorsteinn vann hjá Ísfélagi Vestmannaeyja eftir að hann flutti til Eyja 1921. Þórunn og Þorsteinn eignuðust tvo syni, Elías Ársæl sem lést ársgamall og Jóhann Kristin efnafræðing, sem lærði málaraiðn hjá Engilbert Gíslasyni í Eyjum en vann lengst af hjá Málningarverksmiðjunni Hörpu Reykjavík.
Hannes flutti til Eyja á fyrri hluta 20. aldar.
Eiginkona Hannesar var Vilborg Guðlaugsdóttir (Hróbjartssonar) frá Hallgeirsey í A-Landeyjum, f. 29. okt. 1892 d. 23. okt. 1932. Einn bræðra hennar var Hróbjartur Guðlaugsson sem lengi bjó í Landlyst, faðir Margrétar í Gvendarhúsi og Guðmundar, skósmiðs í Landlyst.
Hannes og Vilborg eignuðust dæturnar Magneu f. 1922, Jónu f. 1925 og Ástu f. 1929. Vilborg lést árið 1932 en 1936 gekk Hannes að eiga Jóhönnu Sveinsdóttur frá Miðkoti í Fljótshlíð, f. 23. maí 1896 d. 22. okt. 1949. Hannes og Jóhanna eignuðust dótturina Hrönn Vilborgu f. 1939.
Fyrstu ár sín í Eyjum stundaði Hannes sjómennsku, varð síðan verkstjóri við útgerð Kjartans Guðmundssonar ljósmyndara og síðar fiskimatsmaður. Hannes byggði húsið Hæli við Brekastíg, ásamt Sigurði Sigurðssyni járnsmið og flutti fjölskylda Hannesar inn árið 1923 en Sigurður ári fyrr.
Myndir
Heimildir
- Ásta S. Hannesdóttir frá Hæli.
- Haraldur Guðnason, Saltfiskur og sönglist.
- Landeyjabók - Austur-Landeyjar.