„Jarþrúður P. Johnsen“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(setti inn stærri útgáfu af mynd) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd: | [[Mynd:Jartrudur1.jpeg|thumb|300px|''Jarþrúður Johnsen.'']] | ||
'''Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen''' fæddist 3. júní 1890 í Fnjóskadal og lést 9. október 1969. Hún var dóttir séra Péturs Jónssonar og Helgu Skúladóttur á Hálsi í Fnjóskadal. Jarþrúður var kona [[Sigfús M. Johnsen|Sigfúsar Maríusar Johnsen]]. | '''Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen''' fæddist 3. júní 1890 í Fnjóskadal og lést 9. október 1969. Hún var dóttir séra Péturs Jónssonar og Helgu Skúladóttur á Hálsi í Fnjóskadal. Jarþrúður var kona [[Sigfús M. Johnsen|Sigfúsar Maríusar Johnsen]]. |
Núverandi breyting frá og með 24. júlí 2011 kl. 01:21
Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen fæddist 3. júní 1890 í Fnjóskadal og lést 9. október 1969. Hún var dóttir séra Péturs Jónssonar og Helgu Skúladóttur á Hálsi í Fnjóskadal. Jarþrúður var kona Sigfúsar Maríusar Johnsen.
Jarþrúður gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og stundaði síðan tungumálanám. Á yngri árum þótti hún hafa fagra söngrödd og lærði hún meðal annars hjá frægum söngkennara í Kaupmannahöfn. Eitt sinn héldu þær saman tónleika í Vestmannaeyjum, Jarþrúður og Anna Pálsdóttir píanóleikari, kona Sigurðar Sigurðssonar lyfsala í Eyjum. Hún starfaði mikið að félagsmálum í Vestmannaeyjum og fyrir þau störf gat hún sér góðan orðstýr.
Jarþrúður var einnig hagmælt og gáfuð. Heimili þeirra hjóna bar vott um snyrtimennsku og reglusemi. (Sjá ljóð hennar Í húminu í Bliki 1969).
Sigfús og Jarþrúður eignuðust ekki börn saman en áður átti Sigfús einn son.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1969.