„Stóri-Gjábakki“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Á Stóra Gjábakka bjuggu lengi [[Ásmundur Guðjónsson]], umboðsmaður Olís í Eyjum, oftast kallaður Ásmundur greifi, og kona hans, [[Anna Friðbjarnardóttir]], þekktari sem Bíbí. Einn sona þeirra, [[Atli Ásmundsson|Atli]], sem einnig gekk undir „greifanafninu“, er ræðismaður Íslands í Kanada. | Á Stóra Gjábakka bjuggu lengi [[Ásmundur Guðjónsson]], umboðsmaður Olís í Eyjum, oftast kallaður Ásmundur greifi, og kona hans, [[Anna Friðbjarnardóttir]], þekktari sem Bíbí. Einn sona þeirra, [[Atli Ásmundsson|Atli]], sem einnig gekk undir „greifanafninu“, er ræðismaður Íslands í Kanada. | ||
Stóri Gjábakki fór undir hraun í gosinu 23. janúar 1973. En þá bjuggu þar [[Björgvin Ólafsson]] og kona hans, [[Ásdís Erna Guðmundsdóttir]], ásamt dóttur þeirra [[Ólöf Sigrún Björgvinsdóttir|Ólöfu Sigrúnu]] og [[Sigurður Bjarnason|Sigurði]], fóstra Ásdísar. Ennfremur bjuggu þar [[Sveinn Þorsteinsson]] frá [[Gunnarshólmi|Gunnarshólma]], [[Guðrún Eyland]], [[Elísabet Sigurðardóttir]] og hjónin | Stóri Gjábakki fór undir hraun í gosinu 23. janúar 1973. En þá bjuggu þar [[Björgvin Ólafsson]] og kona hans, [[Ásdís Erna Guðmundsdóttir]], ásamt dóttur þeirra [[Ólöf Sigrún Björgvinsdóttir|Ólöfu Sigrúnu]] og [[Sigurður Bjarnason|Sigurði]], fóstra Ásdísar. Ennfremur bjuggu þar [[Sveinn Þorsteinsson]] frá [[Gunnarshólmi|Gunnarshólma]], [[Guðrún Eyland]], [[Elísabet Sigurðardóttir]] og hjónin Sigurður Stefánsson og [[Ásta Traustadóttir]]. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 24. júlí 2007 kl. 18:23
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Gjábakki“
Húsið Stóri Gjábakki stóð við Bakkastíg 8. Gjábakkajarðirnar voru tvær, Gjábakki-eystri og Gjábakki-vestri. Árið 1909 fékk Jón Einarsson kaupmaður byggingu fyrir jörðinni að Gjábakka-vestri. Hann byggði myndarlegt timburhús við Bakkastíginn, nokkru vestar og var það hús nr. 8. Þetta hús var í daglegu tali oftast nefnt Stóri Gjábakki og gamla húsið, Gjábakki-vestri, kallað Litli Gjábakki til aðgreiningar.
Á Stóra Gjábakka bjuggu lengi Ásmundur Guðjónsson, umboðsmaður Olís í Eyjum, oftast kallaður Ásmundur greifi, og kona hans, Anna Friðbjarnardóttir, þekktari sem Bíbí. Einn sona þeirra, Atli, sem einnig gekk undir „greifanafninu“, er ræðismaður Íslands í Kanada.
Stóri Gjábakki fór undir hraun í gosinu 23. janúar 1973. En þá bjuggu þar Björgvin Ólafsson og kona hans, Ásdís Erna Guðmundsdóttir, ásamt dóttur þeirra Ólöfu Sigrúnu og Sigurði, fóstra Ásdísar. Ennfremur bjuggu þar Sveinn Þorsteinsson frá Gunnarshólma, Guðrún Eyland, Elísabet Sigurðardóttir og hjónin Sigurður Stefánsson og Ásta Traustadóttir.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.