„Finnbogi Finnbogason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Finnbogi Finnbogason.jpg|thumb|300px|Finnbogi í Vallartúni.]]
[[Mynd:Finnbogi Finnbogason.jpg|thumb|300px|Finnbogi í Vallartúni.]]
'''Finnbogi Finnbogason''', [[Vallartún]]i, fæddist að [[Pétursborg]] í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 3. mars 1979. Foreldrar hans voru [[Finnbogi Björnsson]] og [[Rósa Eyjólfsdóttir (Norðurgarði)|Rósa Eyjólfsdóttir]].  

Kona Finnboga var [[Sesselja Einarsdóttir]]. Sonur þeirra var [[Ólafur Tryggvi Finnbogason|Ólafur Tryggvi]].

Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á [[Neptúnus I|Neptúnusi I]] og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á [[Stefnir|Stefni]] en síðar var hann með [[Lára|Láru]], [[Ásdís]]i og [[Þór (bátur)|Þór]] til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir [[Ólafur Auðunsson|Ólaf Auðunsson]] útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.

Útgáfa síðunnar 1. ágúst 2007 kl. 13:43

Finnbogi í Vallartúni.

Finnbogi Finnbogason, Vallartúni, fæddist að Pétursborg í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 3. mars 1979. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir.

Kona Finnboga var Sesselja Einarsdóttir. Sonur þeirra var Ólafur Tryggvi.

Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á Neptúnusi I og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á Stefni en síðar var hann með Láru, Ásdísi og Þór til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir Ólaf Auðunsson útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.

Benedikt Sæmundsson vélstjóri frá Fagrafelli í Vestmannaeyjum samdi kvæði um Finnboga. Við birtum hér fyrstu tvö erindin af sex:

Þú varst ekta Eyjamaður
allt þitt líf og starf var þar
fórst á sjóinn, ferðahraður,
formannsbragur á þér var.
Um það var víst alltaf friður
að þú gengir þessa slóð
selta hafs og sjávarniður
samofið í hold og blóð.

Mikil reisn var ávallt yfir
öllum þínum formannsbrag
í huga mínum lengi lifir
ljósið um það gæfu dag.
er eg kom, þá ungur maður,
á þinn fund, með bágan hag,
víst ég man, hve varð ég lgaður,
því, vel þú tókst mér, þennan dag.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1999.