„Jóhann Friðfinnsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Gagnasafn Morgunblaðsins. Föstudaginn 21. september 2001. Minningargreinar um Jóhann Friðfinnsson.}} | * Gagnasafn Morgunblaðsins. Föstudaginn 21. september 2001. Minningargreinar um Jóhann Friðfinnsson.}} | ||
[[Flokkur: | [[Flokkur:Kaupmenn]] | ||
[[Flokkur:Bæjarstjórar]] | [[Flokkur:Bæjarstjórar]] | ||
[[Flokkur:Bæjarfulltrúar]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 21. öld]] | |||
[[Flokkur:Íbúar við Kirkjuveg]] |
Útgáfa síðunnar 22. júní 2007 kl. 08:27
Jóhann Friðfinnsson, betur þekktur sem Jói á Hólnum, fæddist 3.nóvember 1928 og lést 13. september 2001. Foreldrar Jóhanns voru Friðfinnur Finnsson kafari og síðar kaupamaður í Eyjabúð og kona hans Ásta Sigurbjörg Sigurðardóttir húsmóðir á Oddgeirshólum. Bróðir Jóhanns er Finnbogi Friðfinnsson, fyrrverandi kaupmaður í Eyjabúð kvæntur Kristjönu Þorfinnsdóttur.
Jóhann kvæntist Svanhildi Sigurjónsdóttur, hjúkrunarfræðingi frá Reykjavík, árið 1954. Börn þeirra eru: Ástþór, grafískur hönnuður, f. 21.6, 1955, Kristín, menningarfulltrúi og fulltrúi Vestmannaeyjalistans í bæjarstjórn Vestmannaeyja, f. 11.1. 1960, Jóhann Þorkell flugstjóri, f. 11.5 1961, Davíð viðskiptafræðingur, f. 21.6. 1965, Vigdís kennari, f. 3.10. 1969. Jóhann og Svanhildur slitu samvistir 1981. Fyrir átti Jóhann, með Ernu Vigfúsdóttur, Hrafnhildi, f. 8.8. 1947.
Á yngri árum stundaði Jóhann sjómennsku og lauk prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1947. Þá starfaði hann hjá Flugfélagi Íslands og síðar hjá bæjarfógetaembættinu í Vestmannaeyjum. Hann var kaupmaður í Versluninni Drífanda frá 1956, fram að eldgosinu á Heimaey 1973 og sat í stjórn Viðlagasjóðs árin sem sjóðurinn starfaði.
Seinni hluta starfsævi sinnar var Jóhann framkvæmdastjóri Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja. Frá 1992 var hann forstöðumaður Byggðasafnsins í Eyjum þar til hann lét af störfum fyrir aldur sakir. Síðustu tvö árin skipulagði Jóhann og stjórnaði sagna- og fræðasetri á heimili sínu á Hólnum í Vestmannaeyjum.
Jóhann sat í bæjarstjórn frá 1962 til 1966 og var jafnframt bæjarstjóri. Hann tók aftur sæti sem bæjarfulltrúi frá 1974 til 1978. Um áratugaskeið var hann virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum. Jóhann söng í kirkjukór Landakirkju frá 1950. Sat í sóknarnefnd frá 1971, var formaður frá 1976 til dauðadags og tók þátt í skipulagi kirkjumála í Kjalarnesprófastsdæmi. Hann var félagi í Vestmannaeyjadeild Gideonfélagsins.
Heimildir
- Gagnasafn Morgunblaðsins. Föstudaginn 21. september 2001. Minningargreinar um Jóhann Friðfinnsson.