„Ingvar Jónsson (Mandal)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Ingvar Jónsson. '''Ingvar Jónsson''' frá Bergsstöðum í Biskupstungum, bóndi, sjómaður fæddist 31. ágúst 1878 og lést 3. júní 1954.<br> Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi í Kjarnholtum í Biskupstungum, f. 23. febrúar 1824, d. 19. desember 1904, og Jóhanna Jónsdóttir, f. 4. október 1839, d. 4. nóvember 1899. Ingavar var léttadrengur á Tungufelli í Tungufellssókn 1890, var vinnumaður í Mýrarhúsum...) |
m (Verndaði „Ingvar Jónsson (Mandal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 18. mars 2024 kl. 14:00
Ingvar Jónsson frá Bergsstöðum í Biskupstungum, bóndi, sjómaður fæddist 31. ágúst 1878 og lést 3. júní 1954.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi í Kjarnholtum í Biskupstungum, f. 23. febrúar 1824, d. 19. desember 1904, og Jóhanna Jónsdóttir, f. 4. október 1839, d. 4. nóvember 1899.
Ingavar var léttadrengur á Tungufelli í Tungufellssókn 1890, var vinnumaður í Mýrarhúsum í Kálfatjarnarsókn 1901, var sjómaður, leigjandi í Mandal 1920.
Þau Ástrós hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Efri-Úlfsstöðum í Landeyjum 1937-1938, í Bjargholti við Vesturveg 27 1940 og 1949.
Þau bjuggu síðar í Reykjavík.
Ingvar lést 1954 og Ástrós 1962.
I. Sambúðarkona Ingvars var Ástrós Kristjana Þórðardóttir frá Efri-Úlfsstöðum í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 26. apríl 1904, d. 3. mars 1962.
Barn þeirra:
1. Jón Ingvarsson, bifreiðastjóri, f. 26. febrúar 1925, d. 15. október 1991. Sambúðarkona hans Ásdís Jóhannsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.