Ástrós Kristjana Þórðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ástrós Kristjana Þórðardóttir.

Ástrós Kristjana Þórðardóttir frá Efri-Úlfstaðahjáleigu í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist 26. apríl 1904 og lést 3. mars 1962.
Foreldrar hennar voru Þórður Magnússon bóndi, f. 28. nóvember 1865 í Oddakoti í A.-Landeyjum, d. 1. desember 1937, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir frá Efri-Úlfsstöðum, húsfreyja, f. 19. mars 1879, d. 19. nóvember 1953.

Ástrós var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Ingvar hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Efri-Úlfsstöðum í Landeyjum 1937-1938, í Bjargholti við Vesturveg 27 1940 og 1949.
Þau bjuggu síðar í Reykjavík.
Ingvar lést 1954 og Ástrós 1962.

I. Sambúðarmaður Ástrósar var Ingvar Jónsson frá Bergsstöðum í Biskupstungum, bóndi, sjómaður, f. 31. ágúst 1878, d. 3. júní 1954.
Barn þeirra:
1. Jón Ingvarsson, bifreiðastjóri, f. 26. febrúar 1925, d. 15. október 1991. Sambúðarkona hans Ásdís Jóhannsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.