„Sigurlaug Gísladóttir (Héðinshöfða)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Sigurlaug Gísladóttir. '''Sigurlaug Gísladóttir''' frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, húsfreyja, verkakona fæddist 12. janúar 1946 og lést 9. nóvember 2022 á Landspítalanum.<br> Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902 í Stekkjum í Flóa, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir (Héðinshöfða)|...)
 
m (Verndaði „Sigurlaug Gísladóttir (Héðinshöfða)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 6. desember 2022 kl. 16:39

Sigurlaug Gísladóttir.

Sigurlaug Gísladóttir frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, húsfreyja, verkakona fæddist 12. janúar 1946 og lést 9. nóvember 2022 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902 í Stekkjum í Flóa, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913 á Sólheimum í Hrunamannahreppi, d. 9. október 1995.

Sigurlaug var með foreldrum sínum.
Hún vann ýmis störf, við fiskiðnað, umönnun, verslunarstörf, og starf skólaliða í Lindaskóla í Kópavogi.
Þau Þorvaldur Helgi giftu sig 1965, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Miðstræti 19 við Gosið 1973, síðar í Hafnarfirði, Holtsbúð í Garðabæ, Rjúpufelli 32 í Reykjavík, en síðast í Fjallalind 6 í Kópavogi.
Sigurlaug lést 2022.

I. Maður Sigurlaugar, (21. ágúst 1965 í Eyjum), er Þorvaldur Helgi Benediktsson húsamíðameistari, lögreglumaður, f. 28. júlí 1945 á Hólmavík.
Börn þeirra:
1. Halldóra Þorvaldsdóttir skrifstofumaður, f. 19. júlí 1965. Fyrrum maður hennar Kristján Helgason. Maður hennar Ronny Thorød.
2. Matthildur Þorvaldsdóttir kennari, f. 16. október 1966. Barnsfaðir hennar Jón Þór Einarsson. Maður hennar Agnar Steinarsson.
3. Þórunn Helga Þorvaldsdóttir bóndi, leikskólakennari, f. 17. ágúst 1972. Maður hennar Jóhann Böðvarsson.
4. Guðmundur Stefán Þorvaldsson tölvunarfræðingur, f. 17. mars 1977. Fyrrum kona hans Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Unnusta hans Jóhanna G. Þórisdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 21. nóvember 2022. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Þjóðskrá 1986.
  • Þorvaldur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.