„Kristín Jónsdóttir (Nýjabæ)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 12: | Lína 12: | ||
I. Maður Kristínar, (13. febrúar 1904), var [[Magnús Magnússon (Hólshúsi)|Magnúsar Magnússonar]] sjómaður í Hólshúsi, f. 1. júlí 1878 á Dyrhólum í Mýrdal, drukknaði 17. október 1906.
| I. Maður Kristínar, (13. febrúar 1904), var [[Magnús Magnússon (Hólshúsi)|Magnúsar Magnússonar]] sjómaður í Hólshúsi, f. 1. júlí 1878 á Dyrhólum í Mýrdal, drukknaði 17. október 1906.

Börn þeirra: | Börn þeirra:

1. Ólafur Magnússon, f. 1905, d. 9. júlí 1905.
| 1. Ólafur Magnússon, f. 1905, d. 9. júlí 1905.

2. [[Magnús Kristinn Magnússon]] verkamaður, f. 19. október 1906, d. 10. október 1985.
| 2. [[Magnús Kristinn Magnússon]] verkamaður, f. 19. október 1906, d. 10. október 1985.

Núverandi breyting frá og með 24. maí 2022 kl. 15:58
Kristín Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Hólshúsi fæddist 24. september 1883 í Nýjabæ og lést 27. maí 1957.
Foreldrar hennar voru Jón Kristinn Arnoddsson, þá vinnumaður í Nýjabæ, f. 12. júlí 1862, d. 1. janúar 1942, og
Ólöf Jónsdóttir vinnukona þar, síðar kona Jóns, f. 1854, d. líklega í Vesturheimi.
Kristín ólst upp hjá Kristínu Einarsdóttur í Nýjabæ.
Hún var ógift í Hólshúsi 1901 hjá Ingvari Árnasyni og Gróu Þórðardóttur.
Magnús maður hennar drukknaði 1906 og 1910 var hún ekkja í Hólshúsi í sambýli við Ingvar og Gróu, með börnin Magnús Kristinn Magnússon 4 ára og nýfæddan son, Ingvar Valdimar Gunnarsson. Faðir hans var Gunnar Marel Jónsson, þá ókvæntur í Hólshúsi.
Hún eignaðist annað barn með Gunnari 1914. Það var Ásta Rut.
1920 bjó hún ekkja í Hólshúsi með tvö Gunnarsbörn, en Magnús Kristinn var kominn í Mýrdalinn, ólst þar upp og var vinnumaður á Litlu-Hólum 1920.
1930 var Kristín bústýra hjá Davíð Árnasyni á Skólavegi 18, (Mjölni), með Ástu Rut og Magnús Kristinn hjá sér.
Kristín bjó áfram með Davíð og var síðast búsett á Strandvegi 61, (Ólafsvöllum). Hún lést 1957.
I. Maður Kristínar, (13. febrúar 1904), var Magnúsar Magnússonar sjómaður í Hólshúsi, f. 1. júlí 1878 á Dyrhólum í Mýrdal, drukknaði 17. október 1906.
Börn þeirra:
1. Ólafur Magnússon, f. 1905, d. 9. júlí 1905.
2. Magnús Kristinn Magnússon verkamaður, f. 19. október 1906, d. 10. október 1985.
II. Börn Kristínar Sigríðar með Gunnari Marel Jónssyni óg. í Hólshúsi:
2. Ingvar Valdimar Gunnarsson, f. 10. nóvember 1910, d. 25. ágúst 1928.
3. Ásta Rut Gunnarsdóttir húsfreyja í Hólshúsi, f. 26. janúar 1914, d. 22. desember 2000.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Magnús Haraldsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.