„Ágústa Högnadóttir (Vatnsdal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ágústa Patricia Högnadóttir''' húsfreyja í Eyjum fæddist 14. mars 1944 á Englandi. <br> Foreldrar hennar voru William Thomas Mountford flugmaður, f. 6. maí 1921 í Englan...)
 
m (Verndaði „Ágústa Högnadóttir (Vatnsdal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 8. nóvember 2020 kl. 14:37

Ágústa Patricia Högnadóttir húsfreyja í Eyjum fæddist 14. mars 1944 á Englandi.
Foreldrar hennar voru William Thomas Mountford flugmaður, f. 6. maí 1921 í Englandi, d. 23. ágúst 2012, og kona hans Anna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 12. september 1922 í Vatnsdal, d. 14. febrúar 2013.
Fósturfaðir hennar var Högni Sigurðsson yngri, verkstjóri, vinnuvélastjóri, f. 19. janúar 1929 í Vatnsdal, d. 11. september 2018.

Börn Högna og Kristínar Ingibjargar Þorsteinsdóttur:
1. Þorsteinn Högnason bifreiðastjóri, f. 27. september 1947. Kona hans Helga Sigurðardóttir.
Börn Önnu og fósturbörn Högna:
2. Sigríður Högnadóttir húsfreyja, verslunarmaður í Eyjum, f. 5. september 1956. Barnsfaðir hennar Jón Stefánsson. Maður hennar er Haukur Hauksson sjómaður, f. 8. febrúar 1960 í Keflavík.
Börn Önnu og fósturbörn Högna:
3. Ágústa Patricia Högnadóttir húsfreyja í Eyjum, f. 14. mars 1944 á Englandi. Maður hennar er Stefán Jón Friðriksson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 12. febrúar 1943.
4. Svana Anita Mountford húsfreyja og fiskiðnaðarkona í Eyjum, f. 8. nóvember 1945 á Englandi. Maður hennar er Ingi Páll Karlsson sjómaður, eftirlismaður f. 8. júní 1945.

Ágústa var með foreldrum sínum í Englandi. Hún fylgdi móður sinni til Eyja og ólst upp í Vatnsdal.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1961.
Ágústa var m.a. starfsmaður á skrifstofu bæjarins.
Þau Stefán Jón giftu sig 1964, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Illugagötu 16, síðan á Heiðarvegi 30 og Heiðarvegi 53. Þau byggðu á Austurvegi 1a, Garðshorni og búa þar.

50
Stefán Jón Friðriksson, Ágústa Högnadóttir og börn. Aftari röð frá vinstri: Stefán, Anna, Ágústa, Jón Högni.
Fremri röð frá vinstri: Guðni Davíð og Eyrún.

I. Maður Ágústu, (28. mars 1964), er Stefán Jón Friðriksson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 12. febrúar 1943 í Efri-Ási í Hjaltadal, Skagafirði.
Börn þeirra:
1. Anna Stefánsdóttir starfsmaður Borgarbókasafnsins í Reykjavík, Landmælinga Íslands og er nú skrifstofumaður hjá verslun tengdaforeldra sinna, f. 26. júlí 1964 í Eyjum. Maður hennar Oddur Sigurðsson.
2. Jón Högni Stefánsson sjómaður, vélstjóri í Eyjum, f. 27. ágúst 1968 í Eyjum. Fyrrum sambýliskona hans Dagbjört Laufey Emilsdóttir. Kona hans Stefanía Ársælsdóttir.
3. Eyrún Stefánsdóttir hárgreiðslukona í Noregi, f. 17. október 1977 í Eyjum. Sambýlismaður hennar Eyvar Örn Geirsson.
4. Guðni Davíð Stefánsson verslunarmaður, f. 11. janúar 1982 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.