„Óskar Kjartansson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Óskar Kjartansson''' frá Kirkjuhól, sjómaður, bókbindari í Reykjavík fæddist 4. febrúar 1925 á Kirkjuhól og lést 23. maí 1995 á Landspítalanum. <br...) |
m (Verndaði „Óskar Kjartansson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 14. október 2019 kl. 13:44
Óskar Kjartansson frá Kirkjuhól, sjómaður, bókbindari í Reykjavík fæddist 4. febrúar 1925 á Kirkjuhól og lést 23. maí 1995 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Kjartan Árnason sjómaður, bátsformaður, f. 2. október 1896 á Ketilstöðum í Mýrdal, d. 18. júní 1929, og kona hans Sigríður Valtýsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1896 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 25. maí 1974.
Óskar var með foreldrum sínum í fyrstu, en faðir hans lést, er Óskar var á fimmta árinu.
Hann var með móður sinni á Kirkjuhól 1930 og enn 1940 og í Drangey, Kirkjuvegi 84 1945. Einnig dvaldi hann með Elínu Runólfsdóttur föðurmóður sinni í Brekkuhúsi löngum stundum.
Óskar flutti til Reykjavíkur á síðari hluta fimmta áratugarins og nam bókband og vann við þann iðnað alllengi, en var einnig húsvörður hjá Reykjavíkurborg og víðar.
Hann bjó síðast á Karlagötu 18.
Óskar lést 1995.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 31. maí 1995. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.