„Guðrún Eyjólfsdóttir (Garðstöðum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðrún Eyjólfsdóttir (Garðstöðum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 17: | Lína 17: | ||
4. [[Lilja Jónsdóttir (Garðstöðum)|Lilja Jónsdóttir]] húsfreyja í Keflavík, f. 14. apríl 1916 á Garðstöðum, d. 22. október 1999.
| 4. [[Lilja Jónsdóttir (Garðstöðum)|Lilja Jónsdóttir]] húsfreyja í Keflavík, f. 14. apríl 1916 á Garðstöðum, d. 22. október 1999.

5. [[Helga Jónsdóttir (Garðstöðum)|Ágústa ''Helga'' Jónsdóttir]] húsfreyja í Keflavík, f. 20. ágúst 1917 á Garðstöðum, d. 29. febrúar 2008.
| 5. [[Helga Jónsdóttir (Garðstöðum)|Ágústa ''Helga'' Jónsdóttir]] húsfreyja í Keflavík, f. 20. ágúst 1917 á Garðstöðum, d. 29. febrúar 2008.

6. [[Páll Eydal Jónsson]] slippstjóri, f. 6. desember 1919 á Garðstöðum, d. 27. október 1996.

7. [[Eyjólfur Jónsson (Garðstöðum)|Eyjólfur Jónsson]] sjómaður, vélstjóri, f. 26. mars 1922, d. 6. október 1959. | |||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Núverandi breyting frá og með 9. október 2019 kl. 17:35
Guðrún Eyjólfsdóttir á Garðstöðum, húsfreyja fæddist 9. október 1887 í Keflavík og lést 18. júní 1923.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Ólafsson í Eyjólfsbæ í Útskálasókn, Gull., sjómaður, f. 18. ágúst 1854 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 22. júlí 1913, og kona hans Ólöf Þórarinsdóttir frá Hjáleigusöndum u. V-Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 18. apríl 1854, d. 19. júní 1900.
Bróðir Guðrúnar var
1. Ólafur Eyjólfsson sjómaður á Garðstöðum, f. 4. febrúar 1891, d. 31. júlí 1956.
Guðrún missti móður sína, er hún var á fjórtánda árinu.
Hún var hjú í Þorsteins-húsi í Útskálasókn 1901, fluttist til Eyja 1906.
Þau Jón eignuðust Halldór á Löndum 1908. Þau eignuðust sjö börn, bjuggu á Garðstöðum 1910 og síðan.
Guðrún lést 1923 og Jón 1954.
Maður Guðrúnar, (6. nóvember 1915), var Jón Pálsson útvegsmaður, verkamaður, ísláttarmaður, f. 26. apríl 1874 í Berjanesi u. Eyjafjöllum, d. 10. janúar 1954.
Börn þeirra:
1. Halldór Jónsson sjómaður, vélstjóri, f. 28. september 1908 á Löndum, d. 4. júlí 1976.
2. Ólafur Sigurður Jónsson bakarameistari í Reykjavík, f. 25. febrúar 1912 á Garðstöðum, d. 16. apríl 1988.
3. Björgvin Þorsteinn Jónsson sjómaður, f. 17. mars 1914 á Garðstöðum, d. 16. júlí 1989.
4. Lilja Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 14. apríl 1916 á Garðstöðum, d. 22. október 1999.
5. Ágústa Helga Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 20. ágúst 1917 á Garðstöðum, d. 29. febrúar 2008.
6. Páll Eydal Jónsson slippstjóri, f. 6. desember 1919 á Garðstöðum, d. 27. október 1996.
7. Eyjólfur Jónsson sjómaður, vélstjóri, f. 26. mars 1922, d. 6. október 1959.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.