„Unnur Sigurlín Sigurðardóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Unnur Sigurlín Sigurðardóttir. '''Unnur Sigurlín Sigurðardóttir''' húsfreyja fæddist 24. október 1920 á Rafn...) |
m (Verndaði „Unnur Sigurlín Sigurðardóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. ágúst 2019 kl. 15:01
Unnur Sigurlín Sigurðardóttir húsfreyja fæddist 24. október 1920 á Rafnseyri og lést 6. nóvember 2004 á Vífilsstöðum.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson frá Lambhúshóli u. V-Eyjafjöllum, múrari, f. 31. ágúst 1891, d. 23. apríl 1973, og kona hans Kristín Benediktsdóttir frá Vatneyri við Patreksfjörð, húsfreyja, f. 29. júlí 1893, d. 4. september 1974.
Börn Kristínar og Sigurðar:
1. Unnur Sigurlín Sigurðardóttir, f. 24. október 1920 á Rafnseyri, húsfreyja í Reykjavík, d. 6. nóvember 2004.
2. Elín Benónía Sigurðardóttir, f. 3. september 1924 á Löndum, húsfreyja í Reykjavík, d. 19. nóvember 2011.
3. Magnús Sigurðsson, f. 10. mars 1938 á Urðavegi 44, múrarameistari í Eyjum og í Mosfellsbæ.
Barn Kristínar:
4. Sigrún Bergmann öryrki, f. 22. júní 1912 á Patreksfirði, síðast í Hátúni í Reykjavík, d. 27. október 1987.
Uppeldissonur þeirra var:
5. Garðar Júlíusson rafvirkjameistari, f. 10. nóvember 1932, d. 26. ágúst 1988.
Unnur var með foreldrum sínum í æsku, á Rafnseyri, Löndum og á Urðavegi 44.
Hún fluttist til Reykjavíkur um 1938, giftist Stefáni 1941. Þau eignuðust tvö börn, bjuggu við Ránargötu.
I. Maður Unnar, (6. desember 1941), var Stefán Haraldur Jónsson sýningarstjóri, ökukennari, fyrrverandi sundkappi og Olympíufari, f. 19. febrúar 1918, d. 5. apríl 2011. Foreldrar hans voru Jón Stefánsson, f. 17. júlí 1894, d. 28. desember 1973 og kona hans Jórunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. desember 1878, d. 20. janúar 1944.
Börn þeirra:
1. Kristín Stefánsdóttir húsfreyja, f. 27. maí 1945. Maður hennar Valur Oddsson.
2. Sigurjón Stefánsson, f. 29. október 1950. Kona hans Hjördís Anna Hall.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 21. nóvember 2004. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.