„Ágústa Sveinsdóttir (verkstjóri)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ágústa Sveinsdóttir''' fiskvinnslukona, verkstjóri á Bakkastíg 11 fæddist 24. febrúar 1920 á Túnsbergi og lést 13. september 2012 í Reykjavík.<br>...) |
m (Verndaði „Ágústa Sveinsdóttir (verkstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 5. september 2018 kl. 11:54
Ágústa Sveinsdóttir fiskvinnslukona, verkstjóri á Bakkastíg 11 fæddist 24. febrúar 1920 á Túnsbergi og lést 13. september 2012 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari frá Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963, og kona hans Sólrún Ingvarsdóttir húsfreyja frá Hellnahóli u. Eyjafjöllum, f. 9. október 1891, d. 21. ágúst 1974.
Börn Sveins og Sólrúnar:
1. Ágústa Sveinsdóttir fiskverkakona, verkstjóri, f. 24. febrúar 1920 á Túnsbergi, d. 13. september 2012.
2. Berent Theodór Sveinsson loftskeytamaður, f. 21. ágúst 1926 í Sætúni, d. 29. júlí 2018.
3. Garðar Aðalsteinn Sveinsson rafvirkjameistari, f. 15. janúar 1933 í Sætúni, d. 9. janúar 2012.
4. Tryggvi Sveinsson stýrimaður, f. 20. júní 1934 á Sunnuhvoli.
Ágústa var með foreldrum foreldrum sínum, á Túnsbergi, í Sætúni, á Sunnuhvoli, í EystraStakkagerði og Garðinum.
Hún hóf snemma störf við Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, varð verkstjóri og vann þar til Goss 1973, en fluttist þá til Reykjavíkur, þar sem hún starfaði hjá Umbúðamiðstöðinni til 1994.
Ágústa var ógift og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Morgunblaðið 3. október 2012. Minning.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.