„Ragnhildur Pálsdóttir (Sunnuhvoli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ragnhildur Pálsdóttir''' frá Sunnuhvoli fæddist þar 1. nóvember 1907 og lést 30. júlí 1989.<br> Foreldrar hennar voru Páll Ólafsson (Sunnuhvoli)|Páll...) |
m (Verndaði „Ragnhildur Pálsdóttir (Sunnuhvoli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. febrúar 2018 kl. 16:50
Ragnhildur Pálsdóttir frá Sunnuhvoli fæddist þar 1. nóvember 1907 og lést 30. júlí 1989.
Foreldrar hennar voru Páll Ólafsson verslunarmaður, f. 13. júli 1875 í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, drukknaði við Landeyjasand 10. ágúst 1923, og kona hans Katrín Gísladóttir frá Juliushaab, húsfreyja, f. 20. janúar 1875 í Juliushaab, d. 6. apríl 1962.
Börn Katrínar og Páls:
1. Gísli Pálsson, f. 1. júlí 1906 á Hrauni, d. 5. janúar 1908.
2. Ragnhildur Pálsdóttir, f. 1. nóvember 1907 á Sunnuhvoli, d. 30. júlí 1989.
3. Guðrún Pálsdóttir, f. 10. febrúar 1909 á Sunnuhvoli, d. 20. apríl 1922.
4. Gísli Pálsson málari í Reykjavík, f. 13. október 1910 á Sunnuhvoli, d. 29. maí 1979.
5. Ása Pálsdóttir, f. 21. júní 1914 á Sunnuhvoli, d. 20. júní 1984.
Ragnhildur var með foreldrum sínum, en faðir hennar drukknaði, er hún var á sextánda ári.
Hún var afgreiðslukona í verslun 1930, en bjó með móður sinni á Sunnuhvoli. Hún lék stundum á píanó með þöglu kvikmyndunum á þeim árum.
Ragnhildur fluttist til Reykjavíkur í byrjun fjórða áratugarins og bjó þar síðan, - vann síðar hjá Hitaveitu Reykjavíkur.
Hún giftist ekki, en hélt heimili með móður sinni og systur á Rauðarárstíg 28. Móðir hennar lést 1962 og Ása 1984. Ragnhildur bjó ein eftir lát þeirra.
Hún lést 1989.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 14. ágúst 1989. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.