„Elín K. Sumarliðadóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Elín Katrín Sumarliðadóttir''' húsfreyja í Reykjavík, síðast í Eyjum fæddist 21. september 1923 og lést 25. nóvember 1997.<br> Foreldrar hennar voru Sumarliði Vilhjá...) |
m (Verndaði „Elín K. Sumarliðadóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. nóvember 2017 kl. 11:20
Elín Katrín Sumarliðadóttir húsfreyja í Reykjavík, síðast í Eyjum fæddist 21. september 1923 og lést 25. nóvember 1997.
Foreldrar hennar voru Sumarliði Vilhjálmsson verkamaður, síðast á Ísafirði, f. 13. júní 1886 í Stóru-Ávík, Strand., d. 27. nóvember 1947 og kona hans, (8. október 1910), Sólveig Silfá Gestsdóttir húsfreyja, síðast á Ísafirði, f. 24. september 1888 á Gjögri, Strand., d. 15. júlí 1971.
Þau Hjálmar Kristinn giftu sig 1952 og bjuggu á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, eignuðust þrjú börn.
Elín vann utan heimilis við ræstingar. Hún fluttist til Eyja 1996 og bjó á Foldahrauni.
Hjálmar Kristinn lést 1993 og Elín 1997.
I. Maður Elínar, (7. júní 1952), var Hjálmar Kristinn Helgason sjómaður, verslunarmaður, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993. Foreldrar hans voru Helgi Hjálmarsson sjómaður, trésmiður á Hamri, síðar bóndi í Rotum u. Eyjafjöllum, f. 13. október 1880, d. 6. apríl 1976, og fyrri kona hans Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. desember 1889, d. 25. ágúst 1924.
Börn Elínar og Hjálmars Kristins:
1. Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir húsfreyja í Eyjum, starfsmaður á Sjúkrahúsinu, f. 20. apríl 1944. Maður hennar er Baldur Aðalsteinsson sjómaður.
2. Helgi Hjálmarsson húsasmiður í Eyjum, f. 10. janúar 1952. Kona hans er Sesselja Geirlaug Pálsdóttir frá Lögbergi, húsfreyja, skólaliði, vinnur einnig við ræstingar, f. 9. ágúst 1952.
3. Auður Elín Hjálmarsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, leikskólakennari, f. 25. maí 1955. Maður hennar er Rúnar Eiríksson fangavörður, f. 29. nóvember 1950.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 4. desember 1997. Minning.
- Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.