„Tryggvi Ólafsson (Garðhúsum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1986.}} | * [[Guðjón Ármann Eyjólfsson]]. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. ''Sjómannadagblað Vestmannaeyja.'' 1986.}} | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] |
Útgáfa síðunnar 10. júlí 2006 kl. 11:35
Tryggvi Ólafsson fæddist 8. ágúst 1911 í Garðhúsum í Vestmannaeyjum og lést 9. apríl 1985. Foreldrar hans voru Anna Vigfúsdóttir og Ólafur Jónsson sem bjuggu í Garðhúsum alla tíð. Árið 1939 kvæntist Tryggvi Þórhildi Stefánsdóttur. Bjuggu þau sér heimili við Helgafellsbraut. Eignuðust þau þrjá syni, Ólaf Tryggvason málarameistara í Vestmannaeyjum, Stefán Þór sem býr í Reykjavík og Sævar sem lést árið 2005.
Um fermingu fór Tryggvi að stunda sjómennsku, lengst af á Leó með Þorvaldi Guðjónssyni, síðan á Ver með Jóni Guðmundssyni í Miðey sem var aflakóngur 1946.
Einnig vann Tryggvi við verslunarstörf í versluninni Úrval sem stóð við Miðstræti en árið 1947 sneri hann sér alfarið að málarastörfum og varð meistari í þeirri grein.
Tryggvi var einn af fremstu knattspyrnumönnum Íþróttafélagsins Þórs og var hann virkur félagi í því íþróttafélagi.
Eftir gos settust Tryggvi og Þórhildur að í Kópavogi.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1986.