„Þorleifur Sigurðsson (verkamaður)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þorleifur Sigurðsson''' frá Oddakoti í A-Landeyjum. verkamaður fæddist 5. ágúst 1884 og lést 11. apríl 1952.<br> Foreldrar hans voru Sigurður Gíslason bóndi, f. 10. ma...) |
m (Verndaði „Þorleifur Sigurðsson (verkamaður)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 17. janúar 2017 kl. 21:02
Þorleifur Sigurðsson frá Oddakoti í A-Landeyjum. verkamaður fæddist 5. ágúst 1884 og lést 11. apríl 1952.
Foreldrar hans voru Sigurður Gíslason bóndi, f. 10. mars 1850 í Oddakoti, drukknaði við Eyjar 25. mars 1893, og kona hans Margrét Þorleifsdóttir húsfreyja, síðar vinnukona í Þorlaugargerði, f. 23. júlí 1842 á Tjörnum u. Eyjafjöllum, d. 17. ágúst 1922 í Eyjum.
Bróðir Þorleifs var Þorsteinn Sigurðsson afgreiðslumaður, útgerðarmaður, formaður, fiskkaupmaður, f. 30. júlí 1875, d. 5. ágúst 1935.
Þorleifur (Leifi) var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hans drukknaði 1893. Hann var með móður sinni í Oddakoti 1901, vinnumaður hjá henni í Skíðbakkahjáleigu 1910, ráðsmaður hennar þar 1920.
Þorleifur fluttist til Eyja 1922, bjó í Hjálmholti, á Landagötu 21, en síðar á Jaðri.
Hann lést á Sjúkrahúsinu 1952.
Þorleifur var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Pers.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.