„Árni Rosenkjær“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Árni Karlsson Rosenkjær''' fæddist 28. febrúar 1932 í Sunnudal, (Kirkjuvegi 28).<br> Foreldrar hans voru Carl Rosenkjær verslunarmaður, f. 11. apríl 189...)
 
m (Verndaði „Árni Rosenkjær“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 4. mars 2016 kl. 18:46

Árni Karlsson Rosenkjær fæddist 28. febrúar 1932 í Sunnudal, (Kirkjuvegi 28).
Foreldrar hans voru Carl Rosenkjær verslunarmaður, f. 11. apríl 1895, d. 16. mars 1939, og sambýliskona hans Ágústína (Ágústa) Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. mars 1906 í Framnesi í Hraunshverfi á Eyrarbakka, d. 1. nóvember 1989.

Þrjár systur Árna af fyrra hjónabandi föður hans dvöldu í Eyjum í nokkur ár, áður en Árni fæddist. Fjörða hálfsystir hans fæddist í Danmörku 1925 skömmu eftir komu móður þeirra þangað.
Þær voru:
1. Inger.
2. Lys.
3. Alley.
4. Jytte.

Árni var með foreldrum sínum í Sunnudal við fæðingu og í Dagsbrún 1934, síðan skamma stund á Landagötu 21, en á Bakkastíg við andlát föður síns 1939.
Hann missti föður sinn 7 ára gamall, var með móður sinni í Eyjum til 1944, er þau fluttust til Hafnarfjarðar.
Árni lærði rafvirkjun í Reykjavík, tók sveinspróf 1954 og fékk meistararéttindi 3 árum síðar. Hann stundaði iðnina lengst í Reykjavík.
Árni býr í Hafnarfirði.

Kona Árna, (21. apríl 1960), er Guðríður Karlsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1938. Foreldrar hennar voru Karl I. Jónasson bifreiðastjóri, stöðvarstjóri í Reykjavík, f. 15. júní 1900, d. 18. október 1952 og Guðný Guðlaugsdóttir hótelstýra, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 16. apríl 1912, d. 20. júlí 1997.
Börn þeirra Guðríðar:
1. Karl Ingi Rosenkjær, f. 5. október 1955.
2. Guðrún Hildur Rosenkjær, f. 31. mars 1962.
3. Ágústa Ýr Rosenkjær, f. 9. júlí 1963.
4. Guðný Birna Rosenkjær, f. 27. maí 1969.

----

Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Rosenkjær.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.