„Anna Cathinca Jürgensen“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Anna Cathinca Jürgensen''' (Ane Cathrine Jörgensen), síðar Ziemsen fæddist 2. maí 1845 og lést 31. janúar 1921.<br> Foreldrar hennar voru Christian Andreas Jürgensen skóg...) |
m (Verndaði „Anna Cathinca Jürgensen“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 3. febrúar 2016 kl. 20:48
Anna Cathinca Jürgensen (Ane Cathrine Jörgensen), síðar Ziemsen fæddist 2. maí 1845 og lést 31. janúar 1921.
Foreldrar hennar voru Christian Andreas Jürgensen skógarfógeti í Karhuset á Jótlandi og kona hans Jesmine Jürgensen húsfreyja, fædd Christensen.
Fósturforeldrar hennar voru Jess Thomsen Christensen verslunarstjóri í Godthaab, síðar eigandi verslunarinnar, f. 1816,
og kona hans Jensine Marie Andrea Abel, f. um 1821.
Ane Cathrine kom með fósturforeldrum sínum frá Danmörku 1849 og var með þeim í Nöjsomhed 1851 og 1852.
Þau fóru alfarin til Kaupmannahafnar 1853 með Cathrine Jörgensen 8 ára.
Ane Cathrine (Anna Cathinka) giftist síðar Christian Ziemsen kaupmanni í Reykjavík. Þau voru foreldrar Jes Ziemsens kaupmanns, Knud Ziemsens borgarstjóra í Reykjavík, Christens afgreiðslumanns og konsúls og Cathinku konu Jóhannesar Sigfússonar yfirkennara.
----
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hver er maðurinn — Íslendingaævir. Brynleifur Tobíasson. Fagurskinna 1944.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.