Jensine Marie Andrea Abel

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jensine Marie Andrea Abel, síðar Christensen, húsfreyja fæddist um 1821 í Danmörku.
Foreldrar hennar voru Johan Nicolai Abel sýslumaður, f. 31. mars 1794 í Kværkeby í Ringsted í Sorö, d. 31. október 1862 í Kaupmannahöfn, og kona hans Diderikke Claudine Abel húsfreyja, f. 3. febrúar 1792 í Kaupmannahöfn, d. 18. febrúar 1855 í Hilleröd.

Börn Diderikke og Johan Abel í Eyjum voru:
1. Jensine Marie Andrea Abel húsfreyja, f. um 1821 líklega í Danmörku.
2. Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður, f. 24. maí 1823 á Vesturhúsum.
3. Hans Schack Abel, f. 19. mars 1825 á Vesturhúsum, d. 24. mars 1825 úr „Barnaveiki“.
4. Carolina Augusta Abel, f. 10. mars 1834 í Kornhól.
Fósturbarn þeirra var
5. Jóhanna Sigríður Margrét Bjarnasen, f. 22. júní 1839, d. 4. apríl 1910.
Móðir hennar lést, er hún var á 3. árinu og faðir hennar 3 árum seinna.
Jóhanna var hjá sýslumannshjónunum í Eyjum í 1-2 ár, en fór þá til Reykjavíkur og þaðan til Kaupmannahafnar.

Jensine kom fyrst til Eyja 1840 frá Kaupmannahöfn með föður sínum og var með honum, Haalland lækni og Jórunni Austmann þjónustustúlku í Nöjsomhed 1840.
Hún giftist Jess 1841 og bjó í fyrstu í Godthaab.
Þau Jess fóru úr landi 1845 barnlaus, en þeim fylgdi Carolina Augusta Abel systir Jensine 11 ára. Þau komu aftur 1849 og með þeim fósturbarnið Ane Cathrine Jörgensen 6 ára.
Þau voru í Nöjsomhed 1852 með Ane Cathrine.
Hjónin fóru alfarin til Kaupmannahafnar 1853 með Cathrine Jörgensen 8 ára.
Cathrine (Cathinka) fósturdóttir þeirra giftist síðar Christian Ziemsen kaupmanni í Reykjavík. Þau voru foreldrar Jes Ziemsens kaupmanns, Knud Ziemsens borgarstjóra í Reykjavík, Christens afgreiðslumanns og konsúls og Cathinca konu Jóhannesar Sigfússonar yfirkennara.

Jess keypti Godthaabsverslun ásamt mági sínum Jens Christian Thorvald Abel 10. júní 1847.
Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana Hans Edvard Thomsen.

Maður Jensine, (3. desember 1841), var Jess Thomsen Christensen, þá verslunarstjóri í Godthaab, síðar eigandi verslunarinnar.
Fósturbarn þeirra var
1. Ane Cathrine Jörgensen (Anna Cathinca Jürgensen), síðar Ziemsen, f. 1845, d. 1921.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Hver er maðurinn — Íslendingaævir. Brynleifur Tobíasson. Fagurskinna 1944.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.