„Vigfús Eiríksson (Nýborg)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Vigfús Eiríksson (Nýborg)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:

Systkini Vigfúsar í Eyjum voru:

Systkini Vigfúsar í Eyjum voru:

1. [[Runólfur Eiríksson (Kirkjubæ)|Runólfur Eiríksson]] á Kirkjubæ, f. 1828.

1. [[Sæmundur Eiríksson (Fagurlyst)|Sæmundur Eiríksson]] í [[Fagurlyst]], f. 1825.

2. [[Kristín Eiríksdóttir (Löndum)|Kristín Eiríksdóttir]] á [[Lönd]]um, f. 1842.

2. [[Runólfur Eiríksson (Kirkjubæ)|Runólfur Eiríksson]] á Kirkjubæ, f. 1828.

3. [[Einar Eiríksson (Löndum)|Einar Eiríksson]] á [[Lönd]]um, f. 1847.

3. [[Kristín Eiríksdóttir (Löndum)|Kristín Eiríksdóttir]] á [[Lönd]]um, f. 1842.

4. [[Einar Eiríksson (Löndum)|Einar Eiríksson]] á [[Lönd]]um, f. 1847.

Vigfús var með foreldrum sínum til 1853, var tökubarn á Mýrum í Álftaveri 1853-1855, í Skálmarbæjarseli 1855-1858. Hann var léttadrengur á Ketilsstöðum í Mýrdal 1858-1869.

Vigfús var með foreldrum sínum til 1853, var tökubarn á Mýrum í Álftaveri 1853-1855, í Skálmarbæjarseli 1855-1858. Hann var léttadrengur á Ketilsstöðum í Mýrdal 1858-1869.

Útgáfa síðunnar 29. nóvember 2015 kl. 17:48

Vigfús Eiríksson í Nýborg, síðar verkamaður í Utah fæddist 1. desember 1843 í Lágu-Kotey í Meðallandi og lést Vestanhafs.
Foreldrar hans voru Eiríkur Runólfsson bóndi, síðast í Lágu-Kotey í Meðallandi, f. 1. júní 1798, d. 9. júní 1851, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1801.

Systkini Vigfúsar í Eyjum voru:
1. Sæmundur Eiríksson í Fagurlyst, f. 1825.
2. Runólfur Eiríksson á Kirkjubæ, f. 1828.
3. Kristín Eiríksdóttir á Löndum, f. 1842.
4. Einar Eiríksson á Löndum, f. 1847.

Vigfús var með foreldrum sínum til 1853, var tökubarn á Mýrum í Álftaveri 1853-1855, í Skálmarbæjarseli 1855-1858. Hann var léttadrengur á Ketilsstöðum í Mýrdal 1858-1869.
Vigfús fluttist á Suðurnes, var vinnumaður á Brekku í Útskálasókn 1870, kom þaðan að Fagurlyst 1872, vinnumaður í Jónshúsi 1874-1875, í London 1876, mun hafa verið uppi á Landi 1877 og 1878, var í Sjólyst 1879 og 1880 og þar var Þorgerður vinnukona. Vigfús var lausamaður í Nýborg 1881. Hann var húsmaður með Þorgerði í Nýborg 1882 og með þeim var sonur þeirra Árni á 4. ári, sem hafði komið til þeirra af landi 1882.
Í lok árs 1883 var Vigfús vinnumaður í Boston með Árna son sinn hjá sér, en Þorgerður í Nýborg. Á því ári fæddi Þorgerður dóttur þeirra Vigfúsínu, fór með hana úr Eyjum á árinu og hún dó 1884 utan Eyja.
Þorgerður kom aftur til Eyja 1885 frá Eyjafjöllum, var í Frydendal í lok árs. Vigfús var í Boston á því ári. Árni sonur þeirra var sendur frá Boston til Utah 1885 með Jóni Þorlákssyni húsmanni frá Dufþekju í Hvolhreppi, en Vigfús fór árið eftir og Þorgerður 1887.
Þau Þorgerður giftust og bjuggu í Utah

Barnsmóðir Vigfúsar, síðar eiginkona var Þorgerður Árnadóttir, þá húskona í Nýborg.
Börn þeirra voru:
1. Árni Vigfússon, f. 1878, fór til Utah 1885.
2. Vigfúsína Vigfúsdóttir, f. 25. mars 1883 í Nýborg, d. 20. ágúst 1884.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.