„Jóna Guðlaugsdóttir (Háagarði)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 43: | Lína 43: | ||
[[Flokkur: Íbúar á Brekku]] | [[Flokkur: Íbúar á Brekku]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Faxastíg]] | [[Flokkur: Íbúar við Faxastíg]] | ||
[[Flokkur: Íbúar Mosfelli]] | [[Flokkur: Íbúar á Mosfelli]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Helgafellsbraut]] | [[Flokkur: Íbúar við Helgafellsbraut]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Baðhúsinu]] | [[Flokkur: Íbúar í Baðhúsinu]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Bárustíg]] | [[Flokkur: Íbúar við Bárustíg]] |
Útgáfa síðunnar 18. nóvember 2018 kl. 17:00
Jóna Guðlaugsdóttir húsfreyja fæddist 14. ágúst 1903 og lést 20. desember 1985.
Faðir Jónu var Guðlaugur sjómaður í Mundakoti á Eyrarbakka 1910, f. 18. apríl 1876, d. 10. febrúar 1969, Guðmundsson bónda í Tjarnarkoti og á Langekru á Rangárvöllum, f. 10. september 1835 í Háarima, d. 16. desember 1909 á Bala í Þykkvabæ, Jónssonar bónda í Háarima, f. 1798, d. 1872, Guðnasonar vinnumanns á Víkingslæk Daðasonar.
Móðir Guðmundar bónda í Tjarnarkoti og Langekru og kona Jóns bónda í Háarima var Elín húsfreyja, f. 23. mars 1802, d. 14. nóvember 1875, Jónsdóttir bónda í Norður-Nýjabæ, f. 1769, d. 1839, Oddssonar og konu Jóns Oddssonar Sigríðar húsfreyju Magnúsdóttur, f. 1772, d. 1841.
Móðir Guðlaugs í Mundakoti og kona Guðmundar í Tjarnarkoti var Guðbjörg húsfreyja, f. 23. febrúar 1842, d. 26. október 1930, Árnadóttir bónda á Norðurbakka í Háfssókn, f. 1800, d. 12. mars 1872, Jónssonar og konu Árna, Ólafar húsfreyju, f. 1796, d. 1862, Einarsdóttur.
Móðir Jónu í Háagarði og kona Guðlaugs sjómanns í Mundakoti var Þuríður húsfreyja í Mundakoti 1910, f. 30. nóvember 1874 í Eyrarbakkasókn, d. 24. mars 1963, Magnúsdóttir bónda í Nýjabæ í Stokkseyrarsókn 1890, f. 8. júlí 1848, d. 24. júní 1923, Magnússonar bónda í Stóra Rimakoti 1850, f. 1817, d. 1905, Andréssonar og konu Magnúsar í Stóra Rimakoti, Jórunnar húsfreyju, f. 1815, Pétursdóttur bónda í Einkofa í Eyrarbakkasókn, f. 1768, Ólafssonar og konu Péturs, Agnesar húsfreyju, f. 1776, Runólfsdóttur.
Kona Magnúsar Magnússonar bónda í Nýjabæ og móðir Þuríðar húsfreyju í Mundakoti var Ingigerður húsfreyja í Nýjabæ, f. 3. september 1853, d. 18. apríl 1938, Jónsdóttir bónda í Mundakoti, f. 1816, d. 1895, Magnússonar Arasonar og konu Jóns í Mundakoti, Þuríðar húsfreyju, f. 1812 í Stokkseyrarhreppi, Árnadóttur.
Systkini Jónu í Eyjum:
1. Guðjón Guðlaugsson sjómaður og bóndi í Gvendarhúsi, f. 3. september 1901, d. 18. janúar 1958.
2. Helgi Guðlaugsson bifreiðastjóri á Heiði, f. 3. september 1901, d. 9. júní 1985.
Jóna var með fjölskyldu sinni í Mundakoti í æsku, var þar enn 1920.
Hún fluttist til Eyja 1925, giftist Kristni 1926. Þau eignuðust Jón á því ári á Litla Gjábakka.
Jóna var í Skálholti við giftingu 1926, síðar sama ár á Litla-Gjábakka, húsfreyja í Háagarði 1930 og enn 1934. Þar fæddist Ásta 1934. Þau bjuggu síðan á Brekku og Mosfelli.
Þau Kristinn skildu. Hún var húskona á Bárustíg 15 (Baðhúsinu) 1940 með börnin.
Hún fluttist til Reykjavíkur, þá á Hvolsvöll, síðast á Selfoss.
Jóna var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (2. janúar 1926), var Kristinn Jónsson trésmiður, póstur, síðar á Mosfelli, f. 26. maí 1899, d. 13. júní 1969.
Börn þeirra:
1. Jón Kristinsson vélsmiður, f. 8. apríl 1926 á Litla Gjábakka, d. 1. mars 2009.
2. Ásta Kristinsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 5. október 1934 í Háagarði.
II. Síðari maður Jónu, (12. febrúar 1945), var Sveinn Guðnason frá Kotmúla í Fljótshlíð, bifreiðastjóri á Selfossi, síðast á Hvolsvelli, f. 17. nóvember 1911, d. 18. apríl 2003.
Börn þeirra:
3. Guðlaugur Þórir Sveinsson plötu- og ketilsmiður í Þorlákshöfn, f. 30. október 1940 á Stórólfshvoli.
4. Guðsteinn Ingi Sveinsson í Sandgerði, bakari í Keflavík, f. 4. september 1945 á Selfossi, d. 30. júlí 1967.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ásta Kristinsdóttir.
- Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.