Helgi Guðlaugsson (Heiði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helgi

Helgi Guðlaugsson fæddist 3. september 1901 og lést 9. júní 1985. Helgi var bílstjóri í Vinnslustöðinni.

Eiginkona hans var Guðrún Bjarnadóttir. Synir þeirra voru Guðlaugur og Bjarni. Þau bjuggu í húsinu við Heimagötu 30.

Frekari umfjöllun

Helgi Guðlaugsson bifreiðastjóri á Heiði, fæddist 3. september 1901 á Eyrarbakka og lést 9. júní 1985.
Faðir Helga var Guðlaugur sjómaður í Mundakoti á Eyrarbakka 1910, f. 18. apríl 1876, d. 10. febrúar 1969, Guðmundsson bónda í Tjarnarkoti og á Langekru á Rangárvöllum, f. 10. september 1835 í Háarima, d. 16. desember 1909 á Bala í Þykkvabæ, Jónssonar bónda í Háarima, f. 1798, d. 1872, Guðnasonar vinnumanns á Víkingslæk Daðasonar.
Móðir Guðmundar bónda í Tjarnarkoti og Langekru og kona Jóns bónda í Háarima var Elín húsfreyja, f. 23. mars 1802, d. 14. nóvember 1875, Jónsdóttir bónda í Norður-Nýjabæ, f. 1769, d. 1839, Oddssonar og konu Jóns Oddssonar Sigríðar húsfreyju Magnúsdóttur, f. 1772, d. 1841.
Móðir Guðlaugs í Mundakoti og kona Guðmundar í Tjarnarkoti var Guðbjörg húsfreyja, f. 23. febrúar 1842, d. 26. október 1930, Árnadóttir bónda á Norðurbakka í Háfssókn, f. 1800, d. 12. mars 1872, Jónssonar og konu Árna, Ólafar húsfreyju, f. 1796, d. 1862, Einarsdóttur.

Móðir Helga á Heiði og kona Guðlaugs sjómanns í Mundakoti var Þuríður húsfreyja í Mundakoti 1910, f. 30. nóvember 1874 í Eyrarbakkasókn, d. 24. mars 1963, Magnúsdóttir bónda í Nýjabæ í Stokkseyrarsókn 1890, f. 8. júlí 1848, d. 24. júní 1923, Magnússonar bónda í Stóra Rimakoti 1850, f. 1817, d. 1905, Andréssonar og konu Magnúsar í Stóra Rimakoti, Jórunnar húsfreyju, f. 1815, Pétursdóttur bónda í Einkofa í Eyrarbakkasókn, f. 1768, Ólafssonar og konu Péturs, Agnesar húsfreyju, f. 1776, Runólfsdóttur.
Kona Magnúsar Magnússonar bónda í Nýjabæ og móðir Þuríðar húsfreyju í Mundakoti var Ingigerður húsfreyja í Nýjabæ, f. 3. september 1853, d. 18. apríl 1938, Jónsdóttir bónda í Mundakoti, f. 1816, d. 1895, Magnússonar Arasonar og konu Jóns í Mundakoti, Þuríðar húsfreyju, f. 1812 í Stokkseyrarhreppi, Árnadóttur.

Systkini í Eyjum voru:
1. Guðjón Guðlaugsson sjómaður og bóndi í Gvendarhúsi, tvíburi við Helga, f. 3. september 1901, d. 18. janúar 1958,.
2. Jóna Guðlaugsdóttir húsfreyja í Háagarði, f. 15. ágúst 1903, d. 20. desember 1985.
3. Ingigerður Guðbjörg Guðlaugsdóttir vinnukona á Arnardrangi, f. 15. desember 1907, d. 4. desember 1988. Hún varð húsfreyja á Selfossi, f. 15. desember 1907, d. 4. desember 1988. Hún var til heimilis hjá Helga bróður sínum 1930.
4. Magnús Guðlaugsson sjómaður, f. 3. febrúar 1909, d. 10. apríl 1967.

I. Barnsmóðir Helga var Laufey Líndal Björnsdóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, 22. október 1908, d. 21. júní 1979.
Barn þeirra er
1. Theodór Líndal Helgason bílamálari í Reykjavík, f. 28. júní 1927 í Eyjum, d. 5. maí 2017.

II. Kona Helga var Guðrún Jónína Bjarnadóttir húsfreyja á Heiði, f. 31. júlí 1904, d. 2. apríl 1971.
Börn þeirra voru:
2. Guðmundur Helgason, f. 15. desember 1924, d. 18. nóvember 1947.
3. Bjarni Helgason, f. 10. mars 1926, d. 9. maí 1926.
4. Bjarni Helgason málari, f. 26. júlí 1927, d. 10. febrúar 2013.
5. Guðlaugur Þórarinn Helgason verkstjóri, f. 13. nóvember 1928, d. 23. september 1982.


Heimildir

  • Bergsætt. Guðni Jónsson 1966.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Rangvellingar. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Myndir


Heimildir

  • gardur.is


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.