„Jóhann Pétur Benedikt Bjarnasen“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 4: | Lína 4: | ||
Pétur fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1837, þá á þriðja ári.
| Pétur fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1837, þá á þriðja ári.

Móðir hans lést 1842 og faðir hans 1845.
| Móðir hans lést 1842 og faðir hans 1845.

Eftir lát föður síns 1845 var Pétur í fóstri hjá [[Andreas Steener Iversen Haaland|Haalland]] lækni í [[Garðurinn|Garðinum]], en 1846 og 1847 var hann tökudrengur í Garðinum hjá [[Jörgen Johnsen | Eftir lát föður síns 1845 var Pétur í fóstri hjá [[Andreas Steener Iversen Haaland|Haalland]] lækni í [[Garðurinn|Garðinum]], en 1846 og 1847 var hann tökudrengur í Garðinum hjá [[Jörgen Johnsen (Garðinum)|Jörgen Johnsen]], (ættföður Johnsenættarinnar), verslunarstjóra, en bústýra var [[Sigríður Nikulásdóttir (Beykishúsi)|Sigríður Nikulásdóttir]]. 1849 var hann búðardrengur og bjó á heimili Jörgens Johnsens, og búðardrengur í Garðinum var hann 1855.

Hann fór til Kaupmannahafnar 1857, 23 ára verslunarþjónn, kom aftur þaðan 1858, assistent 1858 og 1859, verslunarþjónn 1860.
| Hann fór til Kaupmannahafnar 1857, 23 ára verslunarþjónn, kom aftur þaðan 1858, assistent 1858 og 1859, verslunarþjónn 1860.

Verslunarstjóri var hann orðinn í Garðinum 1861 og gegndi því starfi til dd. 1869. | Verslunarstjóri var hann orðinn í Garðinum 1861 og gegndi því starfi til dd. 1869. |
Útgáfa síðunnar 25. janúar 2016 kl. 20:51
Jóhann Pétur Benedikt Jóhannsson Bjarnasen verslunarstjóri fæddist 15. nóvember 1834 á Skagaströnd og lést 1. maí 1869.
Foreldrar hans voru Jóhann Bjarnasen verslunarstjóri, f. 9. febrúar 1808, d. 18. júlí 1845, og Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1816, d. 13. apríl 1842.
Pétur fluttist til Eyja með foreldrum sínum 1837, þá á þriðja ári.
Móðir hans lést 1842 og faðir hans 1845.
Eftir lát föður síns 1845 var Pétur í fóstri hjá Haalland lækni í Garðinum, en 1846 og 1847 var hann tökudrengur í Garðinum hjá Jörgen Johnsen, (ættföður Johnsenættarinnar), verslunarstjóra, en bústýra var Sigríður Nikulásdóttir. 1849 var hann búðardrengur og bjó á heimili Jörgens Johnsens, og búðardrengur í Garðinum var hann 1855.
Hann fór til Kaupmannahafnar 1857, 23 ára verslunarþjónn, kom aftur þaðan 1858, assistent 1858 og 1859, verslunarþjónn 1860.
Verslunarstjóri var hann orðinn í Garðinum 1861 og gegndi því starfi til dd. 1869.
Kona Péturs, (9. nóvember 1859), var Johanne Caroline Hansdóttir Rasmussen í Frydendal, f. 2. september 1835, d. 25. febrúar 1920. Hann var fyrri maður hennar.
Börn þeirra hér:
1. Juliane Sigríður Margrét Bjarnasen, f. 7. október 1859, d. 1941, síðast búsett í Rvík. Hún var kona Jóns Árnasonar kaupmanns frá Vilborgarstöðum.
2. Nikolai Carl Frederik Bjarnasen kaupmaður og skipaafgreiðslumaður í Reykjavík, f. 22. desember 1860, d. 12. desember 1948.
3. Jóhann Morten Peter Bjarnasen verslunarstjóri í Garðinum, f. 8. apríl 1862, síðar í Bandaríkjunum.
4. Anton Gísli Emil Bjarnasen útvegsbóndi verslunarstjóri í Garðinum, kaupmaður í Dagsbrún, f. 5. desember 1863, d. 22. mars 1916.
5. Frederik Bjarnasen smiður og verslunarmaður í Rvk, f. 21. nóvember 1865, d. 4. september 1944.
6. Carl Anders Bjarnasen, búsettur í Rvk, f. 4. febrúar 1868.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.