„Guðrún Guðmundsdóttir eldri (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Guðrún Guðmundsdóttir''' yngri, vinnukona á Búastöðum, fæddist 1768 og lést 8. janúar 1841 á Búastöðum.<br> Foreldrar hennar voru sr. [[Guðmundur H...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 17: Lína 17:
*Manntöl.
*Manntöl.
*Prestþjónustubækur.}}
*Prestþjónustubækur.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Bústýrur]]
[[Flokkur: Bústýrur]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 18. öld]]

Núverandi breyting frá og með 16. ágúst 2015 kl. 14:17

Guðrún Guðmundsdóttir yngri, vinnukona á Búastöðum, fæddist 1768 og lést 8. janúar 1841 á Búastöðum.
Foreldrar hennar voru sr. Guðmundur Högnason prestur á Kirkjubæ, f. 1713, d. 6. febrúar 1795, og kona hans Guðrún Hallsdóttir húsfreyja, f. 1725, d. 16. desember 1785.

Börn sr. Guðmundar og Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1749, d. 12. febrúar 1817. Hún var ekkja, vinnukona á Kirkjubæ 1801, ekkja þar 1816. Maki hennar og börn eru ókunn.
2. Stefán Guðmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1750, d. 13. febrúar 1793. Kona hans var Vilborg Erlendsdóttir húsfreyja.
3. Guðmundur Guðmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1753, d. 28. september 1825. Kona hans var Þuríður Einarsdóttir húsfreyja.
4. Anna Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1757, d. 17. apríl 1849, kona sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar.
5. Rakel Guðmundsdóttir húsfreyja í Gvendarhúsi, f. 1758, d. 20. febrúar 1793, kona Bergsteins Guðmundssonar.
6. Árni Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1762, d. 21. apríl 1819. Fyrri kona hans var Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja. Síðari kona hans var Ástríður Þorláksdóttir húsfreyja.
7. Guðrún Guðmundsdóttir bústýra og vinnukona á Búastöðum, f. 1769, d. 8. janúar 1841 á Búastöðum.

Guðrún finnst ekki með vissu fyrr en 1828. Þá var hún með Önnu Guðmundsdóttur prestsekkju, systur sinni, á Búastöðum, vinnukona hjá Bjarna Stefánssyni og Rakel Bjarnhéðinsdóttur á Búastöðum 1832-1834 og bústýra þar hjá Önnu Guðmundsdóttur prestsekkju 1835 og virðist hafa verð á hennar vegum síðan, „hennar systir“. Hún lést þar 1841, kölluð „ómagi“.
Guðrún var ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.