„Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Helgason (Dalbæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðjón Helgason''' sjómaður í Dalbæ fæddist 6. nóvember 1894 á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, N-Múl. og lést í janúarmánuði 1919, fórst á Biskæjafl...) |
Ekkert breytingarágrip |

(4 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Guðjón Helgason''' sjómaður í [[Dalbær|Dalbæ]] fæddist 6. nóvember 1894 á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, N-Múl. og lést í | '''''Kynning.''''' | ||
Foreldrar hans voru [[Helgi Guðmundsson (Dalbæ)|Helgi Guðmundsson]] bóndi, útgerðarmaður og formaður í Dalbæ, f. 9. júlí 1870 í Steinasókn undir Eyjafjöllum, d. 11. mars 1924, og kona hans [[Þóra Jónsdóttir (Dalbæ)|Þóra Jónsdóttir]], f. 17. júní 1868 í Mýrdal, d. 11. mars 1965.

'''Guðjón Helgason''' sjómaður í [[Dalbær|Dalbæ]] fæddist 6. nóvember 1894 á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, N-Múl. og lést í marsmánuði 1918, fórst á Biskæjaflóa með skipinu Rigmor á leið frá Norðfirði til Spánar.

Foreldrar hans voru [[Ritverk Árna Árnasonar/Helgi Guðmundsson (Dalbæ)|Helgi Guðmundsson]] bóndi, útgerðarmaður og formaður í Dalbæ, f. 9. júlí 1870 í Steinasókn undir Eyjafjöllum, d. 11. mars 1924, og kona hans [[Þóra Jónsdóttir (Dalbæ)|Þóra Jónsdóttir]], f. 17. júní 1868 í Mýrdal, d. 11. mars 1965.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''
| '''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Guðjón réðst á seglskipið Rigmor og fórst með því í utanlandssiglingu í marsmánuði | Guðjón réðst á seglskipið Rigmor og fórst með því í utanlandssiglingu í marsmánuði 1918. Guðmundur, faðir Helga í Dalbæ, varð bráðkvaddur í [[Stakkagerði|Stakkagerðisheimganginum]], en Jón, bróðir Helga, (Jón á [[Seljaland]]i), varð bráðkvaddur niðri í fiskikró.

Guðjón var rúmlega meðalmaður á hæð, ljósleitur og fríður sýnum, liðlega vaxinn, vel lipur og ágætur íþróttamaður. Hann var einn af stofnendum [[Íþróttafélagið Þór|íþróttafélagsins Þórs]]. Hann var mjög prúður í framkomu, orðvar og stilltur, skemmtilegur félagi, vinmargur og vinhollur.
| Guðjón var rúmlega meðalmaður á hæð, ljósleitur og fríður sýnum, liðlega vaxinn, vel lipur og ágætur íþróttamaður. Hann var einn af stofnendum [[Íþróttafélagið Þór|íþróttafélagsins Þórs]]. Hann var mjög prúður í framkomu, orðvar og stilltur, skemmtilegur félagi, vinmargur og vinhollur.

Hann var nokkuð við lundaveiðar í [[Suðurey]] og [[Álsey]] og þótti miðlungs veiðimaður. Hann var besti viðlegufélagi, kátur og reifur.
| Hann var nokkuð við lundaveiðar í [[Suðurey]] og [[Álsey]] og þótti miðlungs veiðimaður. Hann var besti viðlegufélagi, kátur og reifur.

Lína 9: | Lína 11: | ||
Móðir Helga í Dalbæ, Margrét Eiríksdóttir, var systir [[Eyjólfur Eiríksson|Eyjólfs]] föður þeirra systkina [[Rósa Eyjólfsdóttir|Rósu í Þorlaugargerði]], [[Jóel Eyjólfsson|Jóels á Sælundi]], [[Guðjón Eyjólfsson|Guðjóns á Kirkjubæ]], [[Gísli Eyjólfsson (eldri)|Gísla á Búastöðum]] og [[Margrét Eyjólfsdóttir (Stóra-Gerði)|Margrétar í Gerði]].
| Móðir Helga í Dalbæ, Margrét Eiríksdóttir, var systir [[Eyjólfur Eiríksson|Eyjólfs]] föður þeirra systkina [[Rósa Eyjólfsdóttir|Rósu í Þorlaugargerði]], [[Jóel Eyjólfsson|Jóels á Sælundi]], [[Guðjón Eyjólfsson|Guðjóns á Kirkjubæ]], [[Gísli Eyjólfsson (eldri)|Gísla á Búastöðum]] og [[Margrét Eyjólfsdóttir (Stóra-Gerði)|Margrétar í Gerði]].

Guðmundur, faðir Helga í Dalbæ, var bróðir Jóns í Steinum, föður [[Sveinn Jónsson (Sveinsstöðum)|Sveins gamla í Völundi]] á [[Sveinsstaðir|Sveinsstöðum]], [[Helgi Jónsson (Steinum)|Helga]] í [[Steinar|Steinum]] og [[Ísleifur Jónsson (Nýjahúsi)|Ísleifs]] í [[Nýjahús]]i.
| Guðmundur, faðir Helga í Dalbæ, var bróðir Jóns í Steinum, föður [[Sveinn Jónsson (Sveinsstöðum)|Sveins gamla í Völundi]] á [[Sveinsstaðir|Sveinsstöðum]], [[Helgi Jónsson (Steinum)|Helga]] í [[Steinar|Steinum]] og [[Ísleifur Jónsson (Nýjahúsi)|Ísleifs]] í [[Nýjahús]]i.

{{Árni Árnason}} | {{Árni Árnason}} | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
Lína 18: | Lína 19: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Íslendingabók.is.}} | *Íslendingabók.is.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Sjómenn]] | [[Flokkur: Sjómenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Dalbæ]] | [[Flokkur: Íbúar í Dalbæ]] |
Núverandi breyting frá og með 25. október 2015 kl. 20:42
Kynning.
Guðjón Helgason sjómaður í Dalbæ fæddist 6. nóvember 1894 á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, N-Múl. og lést í marsmánuði 1918, fórst á Biskæjaflóa með skipinu Rigmor á leið frá Norðfirði til Spánar.
Foreldrar hans voru Helgi Guðmundsson bóndi, útgerðarmaður og formaður í Dalbæ, f. 9. júlí 1870 í Steinasókn undir Eyjafjöllum, d. 11. mars 1924, og kona hans Þóra Jónsdóttir, f. 17. júní 1868 í Mýrdal, d. 11. mars 1965.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Guðjón réðst á seglskipið Rigmor og fórst með því í utanlandssiglingu í marsmánuði 1918. Guðmundur, faðir Helga í Dalbæ, varð bráðkvaddur í Stakkagerðisheimganginum, en Jón, bróðir Helga, (Jón á Seljalandi), varð bráðkvaddur niðri í fiskikró.
Guðjón var rúmlega meðalmaður á hæð, ljósleitur og fríður sýnum, liðlega vaxinn, vel lipur og ágætur íþróttamaður. Hann var einn af stofnendum íþróttafélagsins Þórs. Hann var mjög prúður í framkomu, orðvar og stilltur, skemmtilegur félagi, vinmargur og vinhollur.
Hann var nokkuð við lundaveiðar í Suðurey og Álsey og þótti miðlungs veiðimaður. Hann var besti viðlegufélagi, kátur og reifur.
Lífsstarf hans var sjómennska og ýmiss konar fiskimannsstörf, og þá einkum í sambandi við útgerð föður síns við mb. Austra VE-99. Guðjón lést ókvæntur og barnlaus og mjög harmdauði.
Móðir Helga í Dalbæ, Margrét Eiríksdóttir, var systir Eyjólfs föður þeirra systkina Rósu í Þorlaugargerði, Jóels á Sælundi, Guðjóns á Kirkjubæ, Gísla á Búastöðum og Margrétar í Gerði.
Guðmundur, faðir Helga í Dalbæ, var bróðir Jóns í Steinum, föður Sveins gamla í Völundi á Sveinsstöðum, Helga í Steinum og Ísleifs í Nýjahúsi.
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.