„Jóhann Gunnar Ólafsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(19 millibreytingar ekki sýndar frá 9 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Jóhann Gunnar Ólafsson | [[Mynd:KG-mannamyndir 5720.jpg|thumb|250 px|Jóhann Gunnar Ólafsson]] | ||
Jóhann | '''Jóhann Gunnar Ólafsson''' fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal, V-Skaftafellssýslu, d. 1. sept. 1979 í Reykjavík. Foreldrar hans voru [[Ólafur Arinbjarnarson]] verslunarstjóri og [[Sigríður Eyþórsdóttir (Reyni)|Sigríður Eyþórsdóttir]]. Kona Jóhanns var [[Ragna Haraldsdóttir (Reyni)|Ragna Haraldsdóttir]] og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tók við embætti bæjarstjóra hér. Þau áttu 5 syni. | ||
Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn [[bæjarstjórn|bæjarstjóri]] í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. Eftir tveggja ára starf við [[Útvegsbankinn í Vestmannaeyjum|Útvegsbankann í Vestmannaeyjum]] fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár. | |||
Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, þ.á.m. Nokkrir þættir úr sögu Vestmannaeyja I-II (1938), Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum I-II (1938-9), Aðalhöfundur Árbókar Ferðafélags íslands 1948 um Vestmannaeyjar, Kirkjurnar í Vestmannaeyjum, Árbók Hins ísl. fornleifafélags (1933-36) og fjölda annarra sögulegra rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra. | |||
Jóhann var félagsmaður í [[Taflfélag Vestmannaeyja]] og tefldi m.a. fyrir hönd félagsins 1929 og 1930. Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á [[Þjóðhátíð]] árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m. Hann var meðstofnandi [[Knattspyrnufélagið Týr|Knattspyrnufélagsins Týs]] 1921 og fyrsti formaður þess. | |||
Haraldur Guðnason | == Myndir == | ||
<Gallery> | |||
Mynd:KG-mannamyndir 5720.jpg | |||
Mynd:Ellidaey thoriro..jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 5706.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 12336.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 12613.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 16333.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E., I., 144a.jpg | |||
Mynd:Saga Vestm., E II., 128b.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | |||
* [[Haraldur Guðnason]]. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár'', II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991. | |||
* ''Lögfræðingatal'', G-L. Iðunn, Reykjavík, 1992. | |||
}} | |||
[[Flokkur:Týrarar]] | |||
[[Flokkur:Bæjarstjórar]] | |||
[[Flokkur:Athafnafólk]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] |
Núverandi breyting frá og með 19. október 2022 kl. 14:16
Jóhann Gunnar Ólafsson fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal, V-Skaftafellssýslu, d. 1. sept. 1979 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri og Sigríður Eyþórsdóttir. Kona Jóhanns var Ragna Haraldsdóttir og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tók við embætti bæjarstjóra hér. Þau áttu 5 syni.
Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. Eftir tveggja ára starf við Útvegsbankann í Vestmannaeyjum fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár.
Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, þ.á.m. Nokkrir þættir úr sögu Vestmannaeyja I-II (1938), Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum I-II (1938-9), Aðalhöfundur Árbókar Ferðafélags íslands 1948 um Vestmannaeyjar, Kirkjurnar í Vestmannaeyjum, Árbók Hins ísl. fornleifafélags (1933-36) og fjölda annarra sögulegra rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.
Jóhann var félagsmaður í Taflfélag Vestmannaeyja og tefldi m.a. fyrir hönd félagsins 1929 og 1930. Mikið gaman hafði hann á íþróttum og stundaði þær af krafti. Hann tók þátt í fyrsta íþróttamótinu á Þjóðhátíð árið 1922. Þar kastaði hann lengst allra kringlunni, 28,75 m. Hann var meðstofnandi Knattspyrnufélagsins Týs 1921 og fyrsti formaður þess.
Myndir
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.
- Lögfræðingatal, G-L. Iðunn, Reykjavík, 1992.