„Blik 1967/Kvæði, Magnús Jakobsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Changed protection level for "Blik 1967/Kvæði Magnús Jakobsson" [edit=autoconfirmed:move=autoconfirmed])
Ekkert breytingarágrip
 
(8 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
==Fjögur  ljóð==
[[Blik 1967|Efnisyfirlit Bliks 1967]]


Þessi fjögur ljóð hefur hinn góðkunni samborgari okkar hér, Magnús Jakobsson í Skuld, gefið Bliki til birtingar. Kunnum við honum beztu þakkir fyrir.
[[Mynd:Blik 1967 274.jpg|thumb|300px|[[Magnús Jakobsson]]]]


=== ÚR LJÓDABRÉFI: KVÖLDVAKANA í GAMLA DAGA ===
 
 
<big><big><big><big><center>Fjögur  ljóð</center> </big></big></big></big>
 
 
Þessi fjögur ljóð hefur hinn góðkunni samborgari okkar hér, [[Magnús Jakobsson]] í [[Skuld]], gefið Bliki til birtingar. Kunnum við honum beztu þakkir fyrir.
[[Mynd: 1967 b 274 A.jpg|thumb|200px|''Magnús Jakobsson.'']]
 
<big>
:ÚR LJÓDABRÉFI:<br>
:KVÖLDVAKAN Í GAMLA DAGA


:''Vakan fyrrum saman-sett''
:''Vakan fyrrum saman-sett''
Lína 23: Lína 31:
:''Þá var spunnið, þá var kembt,''
:''Þá var spunnið, þá var kembt,''
:''þá var tvinnað snældu á,''
:''þá var tvinnað snældu á,''
:''heimiiið allt í stemmning stefnt''  
:''heimilið allt í stemmning stefnt''  
:''stærðar þáttur ríman þá.''
:''stærðar þáttur ríman þá.''


Lína 37: Lína 45:




=== SKAFTFELLSKA BJARTA BYGGD ===
:SKAFTFELLSKA BJARTA BYGGD


:''Skaftfellska, bjarta byggð,''
:''Skaftfellska, bjarta byggð,''
Lína 57: Lína 65:
:''blessaða sveit.
:''blessaða sveit.


=== DÍSIN ===
 
:DÍSIN
   
   
:''Sem drengur átti ég draumaland
:''Sem drengur átti ég draumaland
Lína 73: Lína 82:
:''að hverfur vart úr minni.  
:''að hverfur vart úr minni.  
:''þar inni sátu öldruð hjón  
:''þar inni sátu öldruð hjón  
:''með ylrík bros á hvömum.  
:''með ylrík bros á hvörmum.  
:''Þau léku sér við lítinn svein,
:''Þau léku sér við lítinn svein,
:''er lá í þeirra örmum.
:''er lá í þeirra örmum.
Lína 81: Lína 90:
:''er leið þarna með léttum nið
:''er leið þarna með léttum nið
:''á leið til hafs, - framsækinn.
:''á leið til hafs, - framsækinn.
:''Og blómin einnig benti´´ún á,
:''Og blómin einnig benti' 'ún á,
:''sem breiddu sig mót sólu   
:''sem breiddu sig mót sólu   
:''með ljúfan iim í litadýrð
:''með ljúfan ilm í litadýrð
:''og líf sitt henni fólu.
:''og líf sitt henni fólu.


Lína 95: Lína 104:
:''og ekki nokkur friður.
:''og ekki nokkur friður.


:''Svo lyfti´´ún örmum, leið mér frá  
:''Svo lyfti' 'ún örmum, leið mér frá  
:''í ljósan, bláan geiminn,  
:''í ljósan, bláan geiminn,  
:''en eftir mændu augu mín. -  
:''en eftir mændu augu mín. -  
Lína 104: Lína 113:
:''með alsælu í hjarta.
:''með alsælu í hjarta.


=== Skrifað á mynd af hinum kunnu klettum norðan hafnar í Vestmannaeyjum. ===
Skrifað á mynd af hinum kunnu klettum norðan hafnar í Vestmannaeyjum.
[[Mynd:Blik 1967 275.jpg|thumb|400px|Heimaklettur, Miðklettur, Yztiklettur]]
[[Mynd: 1967 b 275 A.jpg|thumb|400px|''Heimaklettur, Miðklettur, Yztiklettur.'']]
:''A sólríkum sumardegi  
 
:''Á sólríkum sumardegi  
:''sérðu hér kletta þrjá:  
:''sérðu hér kletta þrjá:  
:''Heimaklett, Mið- og Yzta-,  
:''Heimaklett, Mið- og Yzta-,  
:''alla þekkirðu þá.  
:''alla þekkirðu þá.  
:''Úr hafinu rísa þeir hreinir,  
:''Úr hafinu rísa þeir hreinir,  
:''höfninni veita skjól, b
:''höfninni veita skjól,  
:''ænum blasa á móti,  
:''bænum blasa á móti,  
:''baðaðir lífi og sól.
:''baðaðir lífi og sól.
---
---
:''Yndi þeir eru allra, -  
:''Yndi þeir eru allra, -  
:''allra í þessari byggð. -  
:''allra í þessari byggð. -  
:''Og fjöllin blessuð að  
:''Og fjöllin blessuð að baki
:''baki blámóðu fagurskyggð.
:''blámóðu fagurskyggð.
 
::::[[Magnús Jakobsson|''M.J.'']]
 


M. J.


{{Blik}}
{{Blik}}

Núverandi breyting frá og með 20. september 2010 kl. 10:50

Efnisyfirlit Bliks 1967



Fjögur ljóð


Þessi fjögur ljóð hefur hinn góðkunni samborgari okkar hér, Magnús Jakobsson í Skuld, gefið Bliki til birtingar. Kunnum við honum beztu þakkir fyrir.

Magnús Jakobsson.

ÚR LJÓDABRÉFI:
KVÖLDVAKAN Í GAMLA DAGA
Vakan fyrrum saman-sett
sálræn hafði völdin.
Stakan gerði lífið létt
löngu vetrarkvöldin.
---
Þér í stöku sendi ég, sjá,
sanna vöku liðins dags,
margir bökin beygðu þá
við bis und töku sögu og brags.
Þá var tendrað lítið ljós
lampa á, og þótti gott,
borin kola í búr og fjós
með bræðing eða lýsisvott.
Þá var spunnið, þá var kembt,
þá var tvinnað snældu á,
heimilið allt í stemmning stefnt
stærðar þáttur ríman þá.
Þá var prjónað, þá var bætt,
þá var rökuð gæra mörg,
ullin sundur teygð og tætt,
troðin voð, er þótti körg.
Sögð var einnig saga þá
af sögumanni, er kunni á skil,
en þegar í garð fór hátíð há,
höfð voru til gamans spil.


SKAFTFELLSKA BJARTA BYGGD
Skaftfellska, bjarta byggð,
báran þig við
öræfi' og freðafjöll
fast móta svið.
Mér er þín myndin kær,
minning þín skír og hlý.
Minn stendur bernskubær
byggð þinni í.
Skaftfellska, bjarta byggð,
börnin þín öll
blessa hvert blómstur þitt,
byggð þína og fjöll, -
finna við fjöllin þín
friðsælan, kæran reit.
Skaftfellska, bjarta byggð,
blessaða sveit.


DÍSIN
Sem drengur átti ég draumaland
og dís svo yndisbjarta,
að enga hefi ég aðra séð
sem altók svo mitt hjarta.
Hún dró mig inn í dýrðarheim
og dýrstu sýndi myndir.
Þær veittu mér þann muna og mátt,
sem mestu svalalindir.
Hún leiddi mig að litlum bæ,
þar ljósin brunnu inni,
og allt svo bjart og hlýtt og hreint,
að hverfur vart úr minni.
þar inni sátu öldruð hjón
með ylrík bros á hvörmum.
Þau léku sér við lítinn svein,
er lá í þeirra örmum.
Og sjá, hún einnig sýndi mér
silfurtæra lækinn,
er leið þarna með léttum nið
á leið til hafs, - framsækinn.
Og blómin einnig benti' 'ún á,
sem breiddu sig mót sólu
með ljúfan ilm í litadýrð
og líf sitt henni fólu.
Og upp hún leiddi einnig mig
á einhvern tindinn hæsta
og sýndi mér um sjónarhring, -
já, sjálfa veröld glæsta.
En einnig lét mig líta þá
í lægstu dældir niður,
þar lífið allt á iði var
og ekki nokkur friður.
Svo lyfti' 'ún örmum, leið mér frá
í ljósan, bláan geiminn,
en eftir mændu augu mín. -
Eg aldrei verð svo gleyminn
að muna ei þann dýrðardraum
og draummynd hennar bjarta,
sem áður fyrri altók mig
með alsælu í hjarta.

Skrifað á mynd af hinum kunnu klettum norðan hafnar í Vestmannaeyjum.

Heimaklettur, Miðklettur, Yztiklettur.
Á sólríkum sumardegi
sérðu hér kletta þrjá:
Heimaklett, Mið- og Yzta-,
alla þekkirðu þá.
Úr hafinu rísa þeir hreinir,
höfninni veita skjól,
bænum blasa á móti,
baðaðir lífi og sól.

---

Yndi þeir eru allra, -
allra í þessari byggð. -
Og fjöllin blessuð að baki
blámóðu fagurskyggð.
M.J.