„Margrét Jónsdóttir (Sætúni)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Margrét Jónsdóttir''' frá Sætúni við Bakkastíg 10, húsfreyja fæddist 11. maí 1916 og lést 24. júní 1985.<br> Foreldrar hennar voru Jón Hjálmarsson frá Kuðungi, útgerðarmaður í Sætúni við Bakkastíg 10, f. 24. október 1890 í Kuðungi, d. 18. nóvember 1945, og kona hans Fríður Ingimundardóttir frá Gjábakka, húsfreyja, f. þar 23. maí 1881, d. 8. júní 195...) |
m (Verndaði „Margrét Jónsdóttir (Sætúni)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 23. febrúar 2023 kl. 21:24
Margrét Jónsdóttir frá Sætúni við Bakkastíg 10, húsfreyja fæddist 11. maí 1916 og lést 24. júní 1985.
Foreldrar hennar voru Jón Hjálmarsson frá Kuðungi, útgerðarmaður í Sætúni við Bakkastíg 10, f. 24. október 1890 í Kuðungi, d. 18. nóvember 1945, og kona hans Fríður Ingimundardóttir frá Gjábakka, húsfreyja, f. þar 23. maí 1881, d. 8. júní 1950.
Börn Fríðar og Jóns:
1. Ingimundur Jónsson, f. 20. nóvember 1913, d. 5. september 1923.
2. Margrét Jónsdóttir, f. 11. maí 1916, d. 24. júní 1985, síðast búsett í Reykjavík, jarðs. í Eyjum.
3. Árni Jónsson, f. 14. október 1917, d. 20. október 1917.
4. Árna Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1920, d. 20. febrúar 1945 á Vífilsstöðum úr berklum. Hún var fyrri kona Einar Guðmundar Ólafssonar frá Búðarfelli.
5. Drengur, f. 18. júlí 1923, d. sama dag.
Margrét var með foreldrum sínum í Sætúni.
Þau Guðmundur giftu sig 1947, eignuðust tvö börn, annað þeirra fæddist andvana og hitt dó dagsgamalt. Þau fóstruðu tvö börn. Þau bjuggu í Sætúni til Goss 1973, fluttust til Reykjavíkur. Þau bjuggu síðast í Gautlandi í Fossvogi.
Margrét lést 1985 og Guðmundur 1997.
![ctr](/images/thumb/1/18/KG-mannamyndir_7540.jpg/400px-KG-mannamyndir_7540.jpg)
I. Maður Margrétar, (1. nóvember 1947), var Guðmundur Gunnar Pálsson frá Eyrarbakka, sjómaður, vélstjóri, bifreiðastjóri, f. 3. nóvember 1919, d. 4. júlí 1997.
Börn þeirra:
1. Drengur, f. andvana 19. mars 1948.
2. Adda Guðmundsdóttir, f. 23. janúar 1949, d. 24. janúar 1949.
Fósturbörn þeirra:
1. Guðný Fríða Einarsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1941.
2. Guðmundur Gunnar Erlingsson, f. 7. febrúar 1957.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 12. júlí 1997. Minning Guðmundar.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.