„Sigurgeir Kristinsson (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Sigurgeir Kristinsson. '''Sigurgeir Sigurður Kristinsson''' frá Norðurgarði, iðnverkamaður, tómstundabóndi fæddist 6. desember 1935 og lést 18. febrúar 2016.<br> Foreldrar hans voru Gísli ''Kristinn'' Aðalsteinsson bóndi, verkamaður, f. 31. desember 1903 í Efra-Haganesi í Haganesvík, Skagaf., d. 13. júní 1963, og kona hans Guðbjörg Einarsdótti...)
 
m (Verndaði „Sigurgeir Kristinsson (Norðurgarði)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 17. nóvember 2022 kl. 14:50

Sigurgeir Kristinsson.

Sigurgeir Sigurður Kristinsson frá Norðurgarði, iðnverkamaður, tómstundabóndi fæddist 6. desember 1935 og lést 18. febrúar 2016.
Foreldrar hans voru Gísli Kristinn Aðalsteinsson bóndi, verkamaður, f. 31. desember 1903 í Efra-Haganesi í Haganesvík, Skagaf., d. 13. júní 1963, og kona hans Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir frá Norðurgarði húsfreyja, f. þar 21. desember 1905, d. 12. ágúst 1972.

Börn Guðbjargar og Kristins:
1. Ástrós Eyja Kristinsdóttir, f. 4. nóvember 1933 í Norðurgarði, d. 31. mars 2012.
2. Sigurgeir Sigurður Kristinsson, f. 6. desember 1935 í Norðurgarði, d. 18. febrúar 2016.
3. Guðbjartur Kristinn Kristinsson, f. 12. apríl 1937 í Norðurgarði, d. 3. maí 2015.
4. Guðbrandína Sveinsína Kristinsdóttir, f. 19. júlí 1938 í Norðurgarði.
5. Alfreð Kristinsson, f. 29. nóvember 1939 í Norðurgarði, d. 10. september 1974.
6. Árný Ingiríður Kristinsdóttir, f. 20. desember 1940 í Norðurgarði.
7. Ásta Guðfinna Kristinsdóttir, f. 18. september 1945 í Norðurgarði.
Fósturbarn hjónanna var
8. Ásta Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Reykjavík, f. 26. september 1924 á Seljalandi, d. 19. nóvember 1995.

Sigurgeir var með foreldrum sínum.
Hann varð sjúkur í æsku og bar þess merki.
Sigurgeir vann ýmis störf, vann lengi við kúabú Bæjarins í Dölum. Hann fluttti til Þorlákshafnar, vann um skeið við kúabúið á Breiðabólstað í Ölfusi, en lengst vann þar í trésmiðju og átti sér fáeinar kindur í fjárhúsi.
Sigurgeir lést 2016.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.