„Jóhann Pétur Sigurðsson (Götu)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: 250px|thumb|right|''Jóhann Pétur Sigurðsson.<br> '''Jóhann Pétur Sigurðsson''' frá Götu, sjómaður fæddist þar 12. nóvember 1923 og drukknaði 8. ágúst 1956.<br> Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson frá Ormsvelli í Hvolhreppi, verkamaður, f. 16. maí 1867, d. 30. desember 1939, og sambýliskona hans Vilborg Jónsdóttir frá Einholti á Mýrum...) |
m (Verndaði „Jóhann Pétur Sigurðsson (Götu)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 1. febrúar 2022 kl. 16:39
Jóhann Pétur Sigurðsson frá Götu, sjómaður fæddist þar 12. nóvember 1923 og drukknaði 8. ágúst 1956.
Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson frá Ormsvelli í Hvolhreppi, verkamaður, f. 16. maí 1867, d. 30. desember 1939, og sambýliskona hans Vilborg Jónsdóttir frá Einholti á Mýrum, A-Skaft, húsfreyja, f. 24. apríl 1889, d. 19. mars 1949.
Börn Sigurðar og Vilborgar:
1. Gísli Ragnar Sigurðsson útgerðarmaður, f. 16. september 1916 á Kirkjubæ, d. 17. maí 1995.
2. Helga Sigurðardóttir húsfreyja, sambýliskona Sigurðar Loftssonar á Bakka í Landeyjum, f. 6. september 1918, d. 20. febrúar 1996.
3. Engilberta Ólafía Sigurðardóttir, f. 12. október 1920 á Búastöðum, d. 26. apríl 1975.
4. Jóhann Pétur Sigurðsson, f. 12. október 1923 í Götu, d. 8. ágúst 1956.
5. Jón Stefán Sigurðsson bóndi á Ketilstöðum í Mýrdal, f. 20. júlí 1926, d. 13. september 1981.
6. Benedikt Ragnar Sigurðsson, f. 4. nóvember 1934 í Götu, síðast á Akureyri, d. 21. mars 1993.
Pétur var með foreldrum sínum í æsku, var mörg sumur í sveit.
Eftir að faðir hans dó, bjó hann með móður sinni í mörg ár í Jómsborg. Síðustu árin átti hann heimili hjá Gísla bróður sínum og Sigríði Haraldsdóttur konu hans á Faxastíg 41.
Hann hóf ungur sjómennsku, var mörg ár á vélbátum og togurum, fyrst á Helgafelli VE 32, og þegar nýsköpunartogararnir komu til landsins réðst hann á Bjarnarey VE 11 og var þar um árabil.
Pétur giftist ekki og eignaðist ekki afkomendur.
Hann drukknaði 1956.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.