„Dagbjört Jónsdóttir (Bakka)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Dagbjört Jónsdóttir''' frá Siglufirði, húsfreyja á Bakka, Flötum 12 fæddist 25. júní 1895 og lést 20. ágúst 1934.<br> Foreldrar hennar voru Jón Loftsson b...) |
m (Verndaði „Dagbjört Jónsdóttir (Bakka)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 12. febrúar 2018 kl. 15:22
Dagbjört Jónsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja á Bakka, Flötum 12 fæddist 25. júní 1895 og lést 20. ágúst 1934.
Foreldrar hennar voru Jón Loftsson bóndi í Saurbæ í Siglufirði, síðar í kaupstaðnum. f. 2. október 1867, drukknaði 18. febrúar 1898, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1864.
Dagbjört missti föður sinn, er húnvar á þriðja árinu.
Hún var vinnukona í Sveinshúsi á Siglufirði 1910, eldhússtúlka hjá sr. Bjarna á Hvanneyri þar 1920, vinnukona á Siglufirði 1930.
Hún fluttist til Eyja, giftist Ólafi 1931. Þau eignuðust ekki barn. Hún veiktist, var flutt til Reykjavíkur og lést þar, jarðsett í Eyjum.
I. Maður hennar, (21. september 1931), var Ólafur Guðmundsson sjómaður, formaður, gúmílímari á Bakka, f. 2. júlí 1892 á Krossi í A-Landeyjum, d. 8. október 1953. Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.