„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1969/ Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1968“: Munur á milli breytinga
StefánBjörn (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1968'''
| '''Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum 1968'''

[[Mynd:Lúðrasveit Vestmannaeyja í broddi fylkingar í skrúðgöngu.png|500px|thumb|center|Lúðrasveit Vestmannaeyja í broddi fylkingar í skrúðgöngu sjómanna 1968. Lúðrasveitin átti 30 ára afmæli 22. marz 1969. Í því tilefni senda sjómenn í Vestmannaeyjum sveitinni sérstakar árnaðaróskir, en Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur af mikilli prýði skemmt á sjómannadegi í Eyjum frá upphafi.]] | |||
[[Mynd:Þrjár blómarósir úr hinni vösku kvennasveit Ísfélags Vestmannaeyja, sem sigraði í róðri kvenna.png|300px|thumb|Þrjár blómarósir úr hinni vösku kvennasveit Ísfélags Vestmannaeyja, sem sigraði í róðri kvenna.]] | |||
Sjómannadagur var haldinn um allt land dagana 25. og 26. maí. - Fór hann fram með hefðbundnum hætti. Hið merkasta má telja, að um sjómannadaginn var opnuð í Reykjavík stærsta og merkilegasta sjávarútvegssýning, sem hér hefur verið haldin til þessa - sýningin Íslendingar og hafið. Svonefndur H-dagur, er Íslendingar skiptu yfir til hægri umferðar, var 26. maí og skyggði mjög á sjómannadaginn. Í þessu sambandi er það reyndar eftirtektarvert, hve sjómannadagurinn skipar æ minni sess meðal íbúa höfuðstaðarsvæðisins. Má þetta undarlegt teljast í landi umgirtu hafi þar sem enginn hefur í sig né á, nema eitthvað fáist úr sjó. Þetta afskipta- og þátttökuleysi á sjómannadaginn vekur undrun margra.
| Sjómannadagur var haldinn um allt land dagana 25. og 26. maí. - Fór hann fram með hefðbundnum hætti. Hið merkasta má telja, að um sjómannadaginn var opnuð í Reykjavík stærsta og merkilegasta sjávarútvegssýning, sem hér hefur verið haldin til þessa - sýningin Íslendingar og hafið. Svonefndur H-dagur, er Íslendingar skiptu yfir til hægri umferðar, var 26. maí og skyggði mjög á sjómannadaginn. Í þessu sambandi er það reyndar eftirtektarvert, hve sjómannadagurinn skipar æ minni sess meðal íbúa höfuðstaðarsvæðisins. Má þetta undarlegt teljast í landi umgirtu hafi þar sem enginn hefur í sig né á, nema eitthvað fáist úr sjó. Þetta afskipta- og þátttökuleysi á sjómannadaginn vekur undrun margra.

Í Vestmannaeyjum hefur þessu ávallt verið á annan og heilbrigðari hátt farið, enda skilja hér allir og meta, hvar sem þeir ella í stétt standa, gildi sjómannastéttarinnar og sjávaraflans. Var hér eins og venjulega almenn þátttaka í hátiðahöldum dagsins og sjómannadagurinn einn af helztu hátíðisdögum Eyjamanna.
| Í Vestmannaeyjum hefur þessu ávallt verið á annan og heilbrigðari hátt farið, enda skilja hér allir og meta, hvar sem þeir ella í stétt standa, gildi sjómannastéttarinnar og sjávaraflans. Var hér eins og venjulega almenn þátttaka í hátiðahöldum dagsins og sjómannadagurinn einn af helztu hátíðisdögum Eyjamanna.

Að venju stóðu hátíðahöldin í tvo daga og hófust á laugardeginum eftir hádegi inni í Friðarhöfn. Var þar keppt í ýmsum íþróttum. Skal þá fyrst telja höfuðíþróttagrein sjómannadagsins, kappróðurinn, en þar var keppt í 7 riðlum, og þreyttu 17 sveitir róður. Er þessi mikli áhugi á kappróðrinum sérstaklega ánægjulegur og lofsverður. Þessi keppnisgrein er líka burðarás í skemmtun laugardagsins. - Að þessu sinni vakti þátttaka stúlkna úr fiskvinnslustöðvunum sérstaka athygli, og þóttu þær sýna ágætan róður. Var þetta skemmtileg tilbreytni, sem væri óskandi, að yrði áframhald á. Róðrarkeppnin var að venju mjög tvísýn og hörð. Róin var 300 metra vegalengd, og var endamark inni í Friðarhöfn. Veður var ágætt, austan golukaldi, glaðasólskin og góðviðri. | Að venju stóðu hátíðahöldin í tvo daga og hófust á laugardeginum eftir hádegi inni í Friðarhöfn. Var þar keppt í ýmsum íþróttum. Skal þá fyrst telja höfuðíþróttagrein sjómannadagsins, kappróðurinn, en þar var keppt í 7 riðlum, og þreyttu 17 sveitir róður. Er þessi mikli áhugi á kappróðrinum sérstaklega ánægjulegur og lofsverður. Þessi keppnisgrein er líka burðarás í skemmtun laugardagsins. - Að þessu sinni vakti þátttaka stúlkna úr fiskvinnslustöðvunum sérstaka athygli, og þóttu þær sýna ágætan róður. Var þetta skemmtileg tilbreytni, sem væri óskandi, að yrði áframhald á. Róðrarkeppnin var að venju mjög tvísýn og hörð. Róin var 300 metra vegalengd, og var endamark inni í Friðarhöfn. Veður var ágætt, austan golukaldi, glaðasólskin og góðviðri. | ||
Úrslit í kapprórðrinum urðu sem hér segir (nafn róðrarbáts í sviga):
| Úrslit í kapprórðrinum urðu sem hér segir (nafn róðrarbáts í sviga):

[[Mynd:Róðrarsveit Gullberginu.png|500px|thumb|center|Róðrarsveit Gullbergs.]] | |||
[[Mynd:Kónar tveir og aflaklær.png|500px|thumb|center|Kóngar tveir og aflaklær.]] | |||
[[Mynd:Róðrarsveit „Steinaldarmanna“, sem vann í riðli unglingasveita.png|500px|thumb|center|Róðrarsveit „Steinaldarmanna“, sem vann í riðli unglingasveita.]] | |||
''Sveitir skipshafna (2 riðlar):''
| ''Sveitir skipshafna (2 riðlar):''

Lína 36: | Lína 41: | ||
Austurbær — 1:40,2 m
| Austurbær — 1:40,2 m

[[Mynd:Skipshöfnin á m.b. Sæbjörgu heiðruð í sjómannadaginn 1968.png|500px|thumb|center|Skipshöfnin á m/b Sæbjörgu heiðruð á Sjómannadaginn 1968. Talið frá vinstri: Hilmar Rósmundsson skipstjóri og fiskikóngur Vestmannaeyja, Stefán Friðriksson stýrimaður, Theódór Ólafsson vélstóri, Snorri Ólafsson, Ingi Steinn Ólafsson, Björn Friðriksson, Kristján Guðmundsson, Már Guðmundsson. Af skipshöfninni vatnar Atla Einarsson og Þór Ólafsson.]] | |||
[[Mynd:Kappróður á Gömlu árabátunum.png|500px|thumb|center|Kappróður á Gömlu árabátunum.]] | |||
[[Mynd:Skipshöfnin á m.b. Gjafari heiðruð á sjómannadaginn 1968.png|500px|thumb|center|Skipshöfnin á m/b Gjafari heiðruð á sjómannadaginn 1968. Talið frá hægri: Rafn Kristjánsson skipstjóri og aflakóngur, Björgvin Magnússon stýrimaður, Haukur Kristjánsson vélstjóri, Sigurður Kristjánsson matsveinn, Kjartan Ólafsson, Páll Guðjónsson, Valdimar Sævar Halldórsson, Jón Hermundsson, Ólafur Edvinsson. Af skipshöfninni vantar Sveinbjörn Guðmundsson vélstjóri og Pál Ingibergsson fiskilóðs.]] | |||
Þetta er glæsilegur hópur, og vill blaðið hér með stinga upp á, að sérstök aukaverðlaun verði veitt fyrir bezta tíma allra sveita.
| Þetta er glæsilegur hópur, og vill blaðið hér með stinga upp á, að sérstök aukaverðlaun verði veitt fyrir bezta tíma allra sveita.

Þá fór fram tunnuhlaup með líku sniði og í fyrra, og var hlaupið yfir samanbundnar fljótandi tunnur. - Þátttakendur í tunnuhlaupinu voru: [[Már Lárusson]], [[Eiríkur Heiðar Sigurgeirsson]], [[Grímur Magnússon]], [[Ragnar Sigurjónsson]] og [[Luvis Pétursson]]. Vann Luvis hlaupið, hljóp yfir 6 tunnur.
| Þá fór fram tunnuhlaup með líku sniði og í fyrra, og var hlaupið yfir samanbundnar fljótandi tunnur. - Þátttakendur í tunnuhlaupinu voru: [[Már Lárusson]], [[Eiríkur Heiðar Sigurgeirsson]], [[Grímur Magnússon]], [[Ragnar Sigurjónsson]] og [[Luvis Pétursson]]. Vann Luvis hlaupið, hljóp yfir 6 tunnur.

[[Mynd:Magnús Magnússon afhendir Kolbeini stýrimanni róðrarsveitar Hraðfrystistöðvar verðlaunabikar.png|300px|thumb|Magnús Magnússon afhendir Kolbeini stýrimanni róðrarsveitar Hraðfrystistöðvar verðlaunabikar.]] | |||
[[Mynd:Bless, elskan! Hafðu engar áhyggjur af þessum prósentum.png|300px|thumb|Bless, elskan! Hafðu engar áhyggjur af þessum prósentum. Ég skal sjá fyrir þeim á meðan!]] | |||
[[Mynd:Í kreppunni.- Það er ekki orðið vandalaust.png|300px|thumb|Í kreppunni.- Það er ekki orðið vandalaust að þekkja forstjórana frá okkur hinum.]] | |||
Í koddaslag var harðvítug keppni, og varð sigurvegari [[Björn Kristjánsson]] (Georgssonar), sem sló alla af sér. Aðrir keppendur voru [[Sigurður Ragnarsson]], [[Sigmar Benediktsson]], [[Sigmar Sveinbjörnsson]], [[Tómas Jónsson]] og [[Ólafur Kristinsson]]. Að loknum þessum ágætu íþróttum var knattspyrnuleikur á íþróttavellinum við Hástein milli 1. deildar [[ÍBV|ÍBV]] og Íslandsmeistara Vals. -Vann lið ÍBV verðskuldaðan sigur með 3 mörkum gegn 1 eftir mjög skemmtilegan og spennandi leik. Var hið glæsilega 1. deildarlið ÍBV hér að hefja sigurgöngu sína sumarið 1968, sem lauk með því, að á haustdögum komu þeir færandi hendi heim með eftirsóttan bikar í bikarkeppni KSÍ. Varð lið ÍBV bikarmeistarar Íslands árið 1968, og veitir þessi eftirsótti sigur liðinu rétt til þátttöku í bikarkeppni Evrópuliða í sumar. Fylgja þeim góðar óskir.
| Í koddaslag var harðvítug keppni, og varð sigurvegari [[Björn Kristjánsson]] (Georgssonar), sem sló alla af sér. Aðrir keppendur voru [[Sigurður Ragnarsson]], [[Sigmar Benediktsson]], [[Sigmar Sveinbjörnsson]], [[Tómas Jónsson]] og [[Ólafur Kristinsson]]. Að loknum þessum ágætu íþróttum var knattspyrnuleikur á íþróttavellinum við Hástein milli 1. deildar [[ÍBV|ÍBV]] og Íslandsmeistara Vals. -Vann lið ÍBV verðskuldaðan sigur með 3 mörkum gegn 1 eftir mjög skemmtilegan og spennandi leik. Var hið glæsilega 1. deildarlið ÍBV hér að hefja sigurgöngu sína sumarið 1968, sem lauk með því, að á haustdögum komu þeir færandi hendi heim með eftirsóttan bikar í bikarkeppni KSÍ. Varð lið ÍBV bikarmeistarar Íslands árið 1968, og veitir þessi eftirsótti sigur liðinu rétt til þátttöku í bikarkeppni Evrópuliða í sumar. Fylgja þeim góðar óskir.

Um laugardagskvöldið var kvöldskemmtun í [[Samkomuhúsið|Samkomuhúsi Vestmannaeyja]] með ágætis meðlæti og skemmtikröftum, [[Magnús Jónsson|Magnúsi Jónssyni]] óperusöngvara og leikurunum [[Árni Tryggvason|Árna Tryggvasyni]], [[Ómar Ragnarsson|Ómari Ragnarssyni]] og Klemensi Jónssyni, en hljómsveitin Gautar frá Siglufirði lék fyrir dansi.
| Um laugardagskvöldið var kvöldskemmtun í [[Samkomuhúsið|Samkomuhúsi Vestmannaeyja]] með ágætis meðlæti og skemmtikröftum, [[Magnús Jónsson|Magnúsi Jónssyni]] óperusöngvara og leikurunum [[Árni Tryggvason|Árna Tryggvasyni]], [[Ómar Ragnarsson|Ómari Ragnarssyni]] og Klemensi Jónssyni, en hljómsveitin Gautar frá Siglufirði lék fyrir dansi.

Núverandi breyting frá og með 4. júlí 2016 kl. 12:14
Sjómannadagur var haldinn um allt land dagana 25. og 26. maí. - Fór hann fram með hefðbundnum hætti. Hið merkasta má telja, að um sjómannadaginn var opnuð í Reykjavík stærsta og merkilegasta sjávarútvegssýning, sem hér hefur verið haldin til þessa - sýningin Íslendingar og hafið. Svonefndur H-dagur, er Íslendingar skiptu yfir til hægri umferðar, var 26. maí og skyggði mjög á sjómannadaginn. Í þessu sambandi er það reyndar eftirtektarvert, hve sjómannadagurinn skipar æ minni sess meðal íbúa höfuðstaðarsvæðisins. Má þetta undarlegt teljast í landi umgirtu hafi þar sem enginn hefur í sig né á, nema eitthvað fáist úr sjó. Þetta afskipta- og þátttökuleysi á sjómannadaginn vekur undrun margra.
Í Vestmannaeyjum hefur þessu ávallt verið á annan og heilbrigðari hátt farið, enda skilja hér allir og meta, hvar sem þeir ella í stétt standa, gildi sjómannastéttarinnar og sjávaraflans. Var hér eins og venjulega almenn þátttaka í hátiðahöldum dagsins og sjómannadagurinn einn af helztu hátíðisdögum Eyjamanna.
Að venju stóðu hátíðahöldin í tvo daga og hófust á laugardeginum eftir hádegi inni í Friðarhöfn. Var þar keppt í ýmsum íþróttum. Skal þá fyrst telja höfuðíþróttagrein sjómannadagsins, kappróðurinn, en þar var keppt í 7 riðlum, og þreyttu 17 sveitir róður. Er þessi mikli áhugi á kappróðrinum sérstaklega ánægjulegur og lofsverður. Þessi keppnisgrein er líka burðarás í skemmtun laugardagsins. - Að þessu sinni vakti þátttaka stúlkna úr fiskvinnslustöðvunum sérstaka athygli, og þóttu þær sýna ágætan róður. Var þetta skemmtileg tilbreytni, sem væri óskandi, að yrði áframhald á. Róðrarkeppnin var að venju mjög tvísýn og hörð. Róin var 300 metra vegalengd, og var endamark inni í Friðarhöfn. Veður var ágætt, austan golukaldi, glaðasólskin og góðviðri.
Úrslit í kapprórðrinum urðu sem hér segir (nafn róðrarbáts í sviga):
Sveitir skipshafna (2 riðlar):
Gullberg (Ólafur) - 1:27,2 m
Lundi (Hreyfill) - 1:29,3 m
Halkion (Ólafur) - 1:30,3 m
Huginn II (Hreyfill) - 1:36,0 m
Sveitir Fiskvinnslustöðva:
Hraðfrystistöð - 1:31,6 m
Vinnslustöð – 1:33,2 m
Ísfélag - 1:40,0 m
Sveitir fyrirtækja:
Neisti - 1:31,1 m
Magni - 1:31,5 m
Sveitir unglinga:
Steinaldarmenn - 1:32,5 m
Skátar - 1:33,4 m
Gagnfræðaskólinn - 1:38,5 m
Sést af þessu, að róðurinn er Eyjamönnum í blóð borinn og þeir hafa kunnað að róa strax á steinöld!
Sveitir blómarósa úr frystihúsunum(reru mjög vel!):
Ísfélag - 1:51,8 m
Vinnslustöð - 1:58,7 m
Fiskiðjan - 1:58,7 m
Sveitir drengja:
Vesturbær - 1:36,2 m
Austurbær — 1:40,2 m
Þetta er glæsilegur hópur, og vill blaðið hér með stinga upp á, að sérstök aukaverðlaun verði veitt fyrir bezta tíma allra sveita.
Þá fór fram tunnuhlaup með líku sniði og í fyrra, og var hlaupið yfir samanbundnar fljótandi tunnur. - Þátttakendur í tunnuhlaupinu voru: Már Lárusson, Eiríkur Heiðar Sigurgeirsson, Grímur Magnússon, Ragnar Sigurjónsson og Luvis Pétursson. Vann Luvis hlaupið, hljóp yfir 6 tunnur.
Í koddaslag var harðvítug keppni, og varð sigurvegari Björn Kristjánsson (Georgssonar), sem sló alla af sér. Aðrir keppendur voru Sigurður Ragnarsson, Sigmar Benediktsson, Sigmar Sveinbjörnsson, Tómas Jónsson og Ólafur Kristinsson. Að loknum þessum ágætu íþróttum var knattspyrnuleikur á íþróttavellinum við Hástein milli 1. deildar ÍBV og Íslandsmeistara Vals. -Vann lið ÍBV verðskuldaðan sigur með 3 mörkum gegn 1 eftir mjög skemmtilegan og spennandi leik. Var hið glæsilega 1. deildarlið ÍBV hér að hefja sigurgöngu sína sumarið 1968, sem lauk með því, að á haustdögum komu þeir færandi hendi heim með eftirsóttan bikar í bikarkeppni KSÍ. Varð lið ÍBV bikarmeistarar Íslands árið 1968, og veitir þessi eftirsótti sigur liðinu rétt til þátttöku í bikarkeppni Evrópuliða í sumar. Fylgja þeim góðar óskir.
Um laugardagskvöldið var kvöldskemmtun í Samkomuhúsi Vestmannaeyja með ágætis meðlæti og skemmtikröftum, Magnúsi Jónssyni óperusöngvara og leikurunum Árna Tryggvasyni, Ómari Ragnarssyni og Klemensi Jónssyni, en hljómsveitin Gautar frá Siglufirði lék fyrir dansi.
Á sunnudagsmorgun hófust hátíðahöldin aftur við Samkomuhúsið. Var gengið þaðan í skrúðgöngu að minnismerki hrapaðra og drukknaðra og síðan til kirkju. Flutti Einar J. Gíslason ræðu við minnismerkið og Magnús Jónsson söng. Sr. Þorsteinn Lúther Jónsson sóknarprestur sá um sjómannamessuna.
Nokkuð spilltist veður, en síðdegis voru að venju skemmtiatriði og ræður á Stakkagerðis túninu, og voru sigurvegarar í íþróttagreinum dagsins verðlaunaðir. Þá voru og veitt heiðursverðlaun og skjöl sjómannadagsins. Á kvöldskemmtun dagsins voru aflakóngur og fiskikóngur ásamt skipshöfnum þeirra hylltir og hæsta nemanda við brottfararpróf Stýrimannaskólans afhent Verðanda-úrið.
Dunaði síðan dansinn til klukkan 4 að morgni. Í alla staði voru hátíðahöldin hin ánægjulegustu og fóru vel fram.