„Ritverk Árna Árnasonar/Krambúðarklakkurinn“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><center> Krambúðarklakkurinn </center></big> Eins og kunnugt er, er Krambúðarklakkurinn gamalt fiskimið ...) |
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Krambúðarklakkurinn“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 8. október 2013 kl. 17:14
Eins og kunnugt er, er Krambúðarklakkurinn gamalt fiskimið hér á Víkinni. Er hann miðaður þannig, að Hásteinninn á að bera við Austurbúðina og ydda á Drengjum undan Klettsnefi.
Fiskaðist þarna stundum heilagfiski, en ekki munu hinir stærri formenn hér hafa stundað það mið. Minni spámennirnir eins og Kobi í „Görn“ og Mundi Stáli, höfðu einkarétt á því, eins og þessi vísa eftir Pál Gíslason bendir til:
- Á Krambúðarklakknum Stáli
- kúrir úti í norðanbáli,
- loðna meður húfu á haus:
- „Hásetunum hvergi hlífi,
- hart ég geng að þeirra lífi
- sem villimaður vægðarlaus“.