„Blik 1965/Stökur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: Efnisyfirlit 1965 =''Stökur''=

Nokkur eintök af Bliki hafa verið seld í Vík í Mýrdal á ári hverju. Það hefur hinn kunni Eyverji gert, [[Þór...)

Ekkert breytingarágrip

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 5: Lína 5:

=''Stökur''=
''Stökur''

Nokkur eintök af Bliki hafa verið seld í Vík í Mýrdal á ári hverju. Það hefur hinn kunni Eyverji gert, [[Þórarinn Einarsson frá Berjanesi]].

Nokkur eintök af Bliki hafa verið seld í Vík í Mýrdal á ári hverju. Það hefur hinn kunni Eyverji gert, [[Þórarinn Einarsson frá Berjanesi]].

Sumarið 1963 fékk ritstjóri Bliks þessa vísu senda austan úr Skaftafellssýslu:

Sumarið 1963 fékk ritstjóri Bliks þessa vísu senda austan úr Skaftafellssýslu:

::„Fyrir Blik ég þakka þér;

::„Fyrir Blik ég þakka þér;

Lína 27: Lína 27:

::STAKA

:::STAKA

::(Sami, B. E.)

::(Sami, B.E.)

::Þó menn striti þetta jafnt,

::Þó menn striti þetta jafnt,

::þurrki út dags- og næturskil,

::þurrki út dags- og næturskil,

Lína 34: Lína 34:
::ógert, sem mann langar til.
::ógert, sem mann langar til.

Árið 1950 kom út bókin Formannsævi í Eyjum, eftir [[Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorstein Jónsson]], skipstjóra í Laufási.

Árið 1950 kom út bókin [[Formannsævi í Eyjum]], eftir [[Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorstein Jónsson]], skipstjóra í Laufási.

Þegar Magnús Þorláksson, hagyrðingur í Reykjavík, hafði lesið bókina, kvað hann:

Þegar Magnús Þorláksson, hagyrðingur í Reykjavík, hafði lesið bókina, kvað hann:

::Forðum menn í bættri brók

::Forðum menn í bættri brók

Lína 54: Lína 54:
::hjartanlega þakka ég þér

::hjartanlega þakka ég þér

::þar með samfylgdina.
::þar með samfylgdina.
::::[[Árni Árnason (símritari)|''Á.Á.'']]
:::::[[Árni Árnason (símritari)|''Á.Á.'']]

Núverandi breyting frá og með 13. september 2010 kl. 21:56

Efnisyfirlit 1965

Stökur

Nokkur eintök af Bliki hafa verið seld í Vík í Mýrdal á ári hverju. Það hefur hinn kunni Eyverji gert, Þórarinn Einarsson frá Berjanesi.
Sumarið 1963 fékk ritstjóri Bliks þessa vísu senda austan úr Skaftafellssýslu:

„Fyrir Blik ég þakka þér;
það var indæll lestur;
Ekki' hefur komið austur hér
öllu betri gestur.“
Ferðafélagi.

Gizkað er á, að höfundurinn hafi verið með í Bændaförinni 1938, en þar var Þ.Þ.V. ferðalangur.

Þegar öskufallið frá Surti spillti drykkjarvatni Eyjabúa haustið 1963, er suðvestanvindar geisuðu, gerði Brynjólfur Einarsson, hagyrðingur hér, þessa vísu:

Breyti' hann um átt, þá veit ég þú sérð,
í vatnsmálum okkar hvað skeður:
hér verður allsherjar gosdrykkjagerð,
gangi' hann í útsunnan veður.

STAKA
(Sami, B.E.)
Þó menn striti þetta jafnt,
þurrki út dags- og næturskil,
verður alltaf eitthvað samt
ógert, sem mann langar til.

Árið 1950 kom út bókin Formannsævi í Eyjum, eftir Þorstein Jónsson, skipstjóra í Laufási.
Þegar Magnús Þorláksson, hagyrðingur í Reykjavík, hafði lesið bókina, kvað hann:

Forðum menn í bættri brók
beittu djarfir fleyjum.
Þakka þér fyrir þína bók,
Þorsteinn minn í Eyjum.

Ort til Magnúsar Magnússonar, netagerðarmeistara, á 60 ára afmæli hans, fyrir hönd vinar hans:

Ævidagsins aftansól
örmum vefji drenginn,
upp á sextugs sjónarhól
sem í dag er genginn.

Fyrir gott sem gerðir mér,
góðra beztur vina,
hjartanlega þakka ég þér
þar með samfylgdina.
Á.Á.