„Laufey Jörgensdóttir“: Munur á milli breytinga
(lagfærði uppsetningu) |
Ekkert breytingarágrip |
||
| Lína 86: | Lína 86: | ||
=== Tengsl við Vestmannaeyjar === | === Tengsl við Vestmannaeyjar === | ||
Vestmannaeyjar hafa alla tíð skipað stóran sess í lífi Laufeyjar og tengslin við heimabyggðina | Vestmannaeyjar hafa alla tíð skipað stóran sess í lífi Laufeyjar og tengslin við heimabyggðina | ||
eru sterk. Fjölskyldan á íbúð í Eyjum og sækir þangað reglulega. Það er margt sem togar í | eru sterk. Fjölskyldan á íbúð í Eyjum og sækir þangað reglulega. Það er margt sem togar í | ||
Núverandi breyting frá og með 21. nóvember 2026 kl. 23:13
Laufey Jörgensdóttir húsfreyja, verkefnastjóri hjá Laugardalshöllinni í Rvk, fæddist 8. ágúst 1975.
Foreldrar hennar Guðlaug Erla Sigmarsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, iðnverkakona, f. 11. október 1942, d. 11. maí 2005, og Jörgen Nåbye sjómaður, útgerðarmaður, trillukarl, f. 10. apríl 1940.
Börn Erlu og Jörgens:
1. Þórunn Júlía Jörgensdóttir, f. 16. desember 1965, maki Ólafur Þór Snorrason, f. 23. ágúst 1968.
2. Auðunn Jörgensson, f. 3. júlí 1969. Barnsmóðir hans Dagmar Svava Jónsdóttir, f. 19. janúar 1970.
3. Laufey Jörgensdóttir, f. 8. ágúst 1975, maki Jónas Þór Friðriksson, f. 12. ágúst 1970.
Barn Erlu:
4. Sigmar Þröstur Óskarsson, f. 24. desember 1961, maki Vilborg Friðriksdóttir, f. 23. nóvember 1965.
Þau Jónas Þór giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.
I. Maður Laufeyjar er Jónas Þór Friðriksson sölustjóri, f. 12. mars 1970.
Börn þeirra:
1. Óskar Dagur Jónasson, f. 22. september 2005 í Rvk.
2. Auður Erla Jónasdóttir, f. 31. október 2008.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Jónas Þór.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.
Laufey Jörgensdóttir
Laufey Jörgensdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og verkefna- og viðburðastjóri í Laugardalshöll. Fædd í Vestmannaeyjum 8. ágúst 1975, ólst upp á Bröttugötu 17 og hefur alla tíð haldið sterkum tengslum við heimabyggð sína.
Fjölskylda og uppruni
Foreldrar Laufeyjar eru Erla Guðlaug Sigmarsdóttir, húsmóðir og fiskvinnslukona (f. 11. október 1940, d. 11. maí 2005), og Jörgen Nåbye, sjómaður og útgerðarmaður (f. 10. apríl 1940). Laufey er yngst fjögurra systkina. Eldri systkini hennar eru Sigmar Þröstur Óskarsson (f. 24. desember 1961), Þórunn Júlía Jörgensdóttir (f. 16. desember 1965) og Auðunn Jörgensson (f. 3. júlí 1969).
Eiginmaður Laufeyjar er Vestmannaeyingurinn Jónas Þór Friðriksson, sölustjóri hjá Hampiðjunni. Þau eiga tvö börn: Óskar Dag (f. 2005) og Auði Erlu (f. 2008). Laufey og Jónas giftu sig í Vestmannaeyjum 5. september 2009. Fjölskyldan býr í Reykjavík.
Menntun
Laufey gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og síðar Framhaldsskóla Vestmannaeyja áður en hún hélt til frekara náms. Laufey lauk B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001, með áherslu á kerfisfræði, mannauðsmál og markaðsmál. Árið 2025 lauk hún meistaragráðu í menningarmiðlun frá Háskóla Íslands, með áherslu á stafræna tækni og nýsköpun. Hún hefur jafnframt lokið náminu Stjórnendur framtíðarinnar, með áherslu á mannauðsmál og markaðsfræði (2013), og námi í markþjálfun (2020), auk þess að hafa sótt fjölmörg námskeið og ráðstefnur á sviði stjórnunar, viðskipta og upplýsingatækni.
Starfsferill
Laufey starfar sem verkefna- og viðburðastjóri hjá Laugardalshöllinni, þar sem hún kemur að skipulagningu fjölbreyttra viðburða á sviði íþrótta, sýninga, tónleika og annarra stórviðburða. Áður starfaði hún um tveggja áratuga skeið hjá Advania, áður Skýrr, þar sem hún gegndi fjölbreyttum störfum á sviði upplýsingatækni, ráðgjafar og stjórnunar. Þar starfaði hún meðal annars sem ráðgjafi, forstöðumaður, sölustjóri og viðskiptastjóri. Hún starfaði áður einnig sem þjónustustjóri hjá Opnum kerfum og vann hjá Íslandsbanka og Landsbanka samhliða námi.
Íþróttir og félagsstörf
Íþróttir hafa skipað stóran sess í lífi Laufeyjar frá unga aldri. Hún var miðjumaður með Tý í knattspyrnu og markmaður meistaraflokks ÍBV í handknattleik, hampaði nokkrum Íslandsmeistaratitlum yngri flokka og var jafnframt landsliðskona í handknattleik. Laufey hefur lokið þjálfaramenntun yngri barna í knattspyrnu á vegum KSÍ og hefur einnig þjálfararéttindi frá ÍSÍ. Hún hefur um árabil tekið virkan þátt í sjálfboðaliða- og félagsstarfi innan íþróttahreyfingarinnar. Sat meðal annars í aðalstjórn Fjölnis og hefur hlotið silfurmerki félagsins fyrir störf sín. Árið 2018 var hún einnig sæmd starfsmerki Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) fyrir vel unnin störf í þágu íþróttahreyfingarinnar.
Laufey er höfundur bókarinnar Undurfagra ævintýr, sem kom út sumarið 2019. Bókin fjallar um
þjóðhátíðarlög Vestmannaeyja á árunum 1933–2019 og þjóðhátíðarmenningu. Með útgáfu
bókarinnar lagði Laufey sitt af mörkum til varðveislu og miðlunar mikilvægs hluta af tónlistar- og
menningararfi Vestmannaeyja.
Laufey er stofnandi Gullna liðsins (2003-2008), klúbbur áhangenda hljómsveitarinnar Sálarinnar
hans Jóns míns og er sér til gamans áhugasamur skrásetjari efnis um Sálina og söngvarann
Stefán Hilmarsson.
Tengsl við Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar hafa alla tíð skipað stóran sess í lífi Laufeyjar og tengslin við heimabyggðina eru sterk. Fjölskyldan á íbúð í Eyjum og sækir þangað reglulega. Það er margt sem togar í Laufeyju þegar kemur að heimahögunum. Fjöllin, einstök náttúra Eyjanna, bryggjan, tuðruferðir, Þjóðhátíðin, íþróttahúsið og golfvöllurinn eiga þar sérstakan stað, en ekki síður fólkið, vinirnir og samfélagið sem hún ólst upp í. Vestmannaeyjar eru því ekki aðeins fæðingarstaður Laufeyjar heldur áfram hennar heimili og órjúfanlegur hluti af lífi hennar.