„Sigríður Guðrún Árnadóttir“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Sigríður Guðrún Árnadóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Sigridur Gudrun Arnadottir.jpg|thumb|200px|''Sigríður Guðrún Árnadóttir.]] | |||
'''Sigríður Guðrún Árnadóttir''', frá [[Hellir|Helli við Vestmannabraut 13b]], húsfreyja á Akureyri fæddist 6. febrúar 1945 og lést 14. maí 2024 á Akureyri.<br> | '''Sigríður Guðrún Árnadóttir''', frá [[Hellir|Helli við Vestmannabraut 13b]], húsfreyja á Akureyri fæddist 6. febrúar 1945 og lést 14. maí 2024 á Akureyri.<br> | ||
Foreldrar hennar voru [[Árni Hannesson (Hvoli)|Árni Hannesson]] frá [[Hvoll (við Urðaveg)|Hvoli við Urðaveg]], vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921, d. 4. júní 1999, og kona hans [[Hulda Sæmundsdóttir (Draumbæ)|Laufey ''Hulda'' Sæmundsdóttir]] frá [[Draumbær|Draumbæ]], húsfreyja, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002. | Foreldrar hennar voru [[Árni Hannesson (Hvoli)|Árni Hannesson]] frá [[Hvoll (við Urðaveg)|Hvoli við Urðaveg]], vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921, d. 4. júní 1999, og kona hans [[Hulda Sæmundsdóttir (Draumbæ)|Laufey ''Hulda'' Sæmundsdóttir]] frá [[Draumbær|Draumbæ]], húsfreyja, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002. |
Núverandi breyting frá og með 9. september 2024 kl. 17:00
Sigríður Guðrún Árnadóttir, frá Helli við Vestmannabraut 13b, húsfreyja á Akureyri fæddist 6. febrúar 1945 og lést 14. maí 2024 á Akureyri.
Foreldrar hennar voru Árni Hannesson frá Hvoli við Urðaveg, vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921, d. 4. júní 1999, og kona hans Laufey Hulda Sæmundsdóttir frá Draumbæ, húsfreyja, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002.
Börn Huldu og Árna:
1. Sæmundur Árnason vélstjóri, f. 6. júlí 1943 í Helli, d. 5. mars 2011.
2. Sigríður Guðrún Árnadóttir húsfreyja á Akureyri, f. 6. febrúar 1945 í Helli, d. 14. maí 2024.
3. Ársæll Helgi Árnason húsasmiður í Eyjum, f. 24. maí 1949 á Hvoli.
4. Kolbrún Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði í Kópavogi, f. 21. nóvember 1953 að Brimhólabraut 12.
5. Sunna Árnadóttir húsfreyja á Akureyri, f. 10. janúar 1955 að Brimhólabraut 12.
6. Helena Árnadóttir húsfreyja í Eyjum, f. 23. desember 1960 að Brimhólabraut 12.
7. Viðar Árnason sjómaður, verkamaður í Reykjavík, f. 12. febrúar 1962, d. 9. október 2022.
Sigríður var með foreldrum sínum í æsku. Hún flutti til Akureyrar um tvítugt.
Þau Frímann giftu sig 1965, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Akureyri.
Frímann lést 2016 og Sigríður 2024.
I. Maður Sigríðar Guðrúnar, (24. desember 1965), var Frímann Frímannsson, setjari, síðan meðferðarfulltrúi, f. 9. júní 1944, d. 4. september 2016. Foreldrar hans voru Frímann Guðmundsson, frá Gunnólfsvík við Bakkaflóa, N.-Múl., deildarstjóri hjá KEA, f. 24. ágúst 1917, d. 15. apríl 2000, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir, frá Syðsta-Mó í Fljótum, Skagaf., húsfreyja, f. 23. nóvember 1918, d. 31. janúar 2011.
Börn þeirra:
1. Ásdís Guðrún Frímannsdóttir, f. 11. nóvember 1964. Maður hennar Marc Carlsson.
2. Frímann Frímannsson, f. 14. júní 1966. Kona hans Ester Sigurðardóttir.
3. Soffía Frímannsdóttir, f. 27. júlí 1973. Maður hennar Elías Kristjánsson.
4. Harpa Frímannsdóttir, f. 13. janúar 1976. Maður hennar Davíð Scheving.
5. Hulda Frímannsdóttir, f. 14. janúar 1983. maður hennar Skúli Eyjólfsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning .
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.