„Hrefna Friðgeirsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Hrefna Friðgeirsdóttir''', frá Hvíld við Faxastíg 14, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 26. maí 1956.<br> Foreldrar hennar voru Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 2016 í Rekavík bak Látur, d. 16. júní 2001 í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, og kona hans Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 8. september 1915 í Dvergasteini,...)
 
m (Verndaði „Hrefna Friðgeirsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 28. júlí 2024 kl. 11:23

Hrefna Friðgeirsdóttir, frá Hvíld við Faxastíg 14, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 26. maí 1956.
Foreldrar hennar voru Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 2016 í Rekavík bak Látur, d. 16. júní 2001 í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, og kona hans Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 8. september 1915 í Dvergasteini, síðast í Kópavogi, d. 9. júlí 1991.

Börn Elínborgar Dagmarar og Friðgeirs:
1. Svava Guðríður Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1940 á Efra-Hvoli, d. 9. janúar 2017. Maður hennar er Sævald Pálsson frá Þingholti.
2. Guðlaugur Kjartan Friðgeirsson bifvélavirkjameistari, f. 1. desember 1942 á Skjaldbreið. Kona hans er Þorgerður Sigríður Þorgeirsdóttir frá Sælundi.
3. Drengur, f. 14. nóvember 1945 í Hvíld, d. 24. nóvember 1945.
4. Sigríður Þyrí Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1947 í Hvíld. Maður hennar er Lárus Guðberg Lárusson.
5. Sigrún Þóranna Friðgeirsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 17. maí 1948 í Hvíld. Fyrri maður hennar var Pétur Ólafsson Welker. Síðari maður hennar er Halldór Þór Guðmundsson.
6. Elínborg Fríða Friðgeirsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 4. apríl 1952 í Hvíld. Maður hennar er Kristján Valgeirsson.
7. Sólveig Friðgeirsdóttir húsfreyja á Laugarvatni, f. 6. júní 1953 í Hvíld. Maður hennar er Böðvar Ingi Benjamínsson.
8. Hrefna Friðgeirsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. maí 1956 í Hvíld. Maður hennar er Jónas Hafsteinn Jónasson.

Þau Jónas Hafsteinn giftu sig 1977, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Hrefnu, (17. desember 1977), er Jónas Hafsteinn Jónsson, f. 19. september 1956. Foreldrar hans Jón Magnúson, f. 11. desember 1919, d. 28. júlí 1981, og Guðfinna Ingunn Jónasdóttir, f. 3. desember 1926, d. 9. febrúar 2016.
Börn þeirra:
1. Arnar Jónasson, f. 13. september 1976 í Rvk.
2. Hafsteinn Jónasson, f. 13. september 1976 í Rvk.
3. Ingunn Jónasdóttir, f. 22. febrúar 1990 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.