„Egill Árnason (vélstjóri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(4 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Egill Árnason.JPG|thumb|100px|''Egill Árnason.]] | [[Mynd:Egill Árnason.JPG|thumb|100px|''Egill Árnason.]] | ||
'''Egill Axel Árnason''' vélstjóri, útgerðarmaður fæddist 18. júní 1911 á Seyðisfirði og lést 9. janúar 1976.
| '''Egill Axel Árnason''' vélstjóri, útgerðarmaður fæddist 18. júní 1911 á Seyðisfirði og lést 9. janúar 1976.

Foreldrar hans voru [[Árni Þorkelsson]] í Nóatúni á Seyðisfirði 1910, síðar bóndi og trésmiður á Látrum í Aðalvík og útgerðarmaður í Skáladal, en síðast í Eyjum, f. 31. ágúst 1882 og [[Kristín Eyjólfsdóttir|Anna ''Kristín'' Eyjólfsdóttir]] ráðskona hans, síðar húsfreyja á Látrum og Skáladal í N.-Ísafj.s. og síðast í Eyjum, f. 17. júlí 1886, d. 1. apríl 1952. | Foreldrar hans voru [[Árni Þorkelsson]] í Nóatúni á Seyðisfirði 1910, síðar bóndi og trésmiður á Látrum í Aðalvík og útgerðarmaður í Skáladal, en síðast í Eyjum, f. 31. ágúst 1882 og [[Kristín Eyjólfsdóttir (Látrum)|Anna ''Kristín'' Eyjólfsdóttir]] ráðskona hans, síðar húsfreyja á Látrum og Skáladal í N.-Ísafj.s. og síðast í Eyjum, f. 17. júlí 1886, d. 1. apríl 1952. | ||
Egill var hjá frændfólki sínu á Látrum í Sléttuhreppi 1920, fór til sjós 14 ára, var vinnumaður á Hesteyri 1930.
| Egill var hjá frændfólki sínu á Látrum í Sléttuhreppi 1920, fór til sjós 14 ára, var vinnumaður á Hesteyri 1930.

Lína 11: | Lína 11: | ||
Egill lést 1976 og Guðrún 1994. | Egill lést 1976 og Guðrún 1994. | ||
Kona Egils, (28. desember 1940), var [[Guðrún Kristjánsdóttir (Hvanneyri)|Guðrún Magnússína Kristjánsdóttir]] húsfreyja, f. 2. janúar 1919, d. 15. apríl 1994.
| Kona Egils, (28. desember 1940), var [[Guðrún M. Kristjánsdóttir (Hvanneyri)|Guðrún Magnússína Kristjánsdóttir]] húsfreyja, f. 2. janúar 1919, d. 15. apríl 1994.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. [[Kristján Egilsson (Hvanneyri)|Kristján Egilsson]] forstöðumaður fiska- og náttúrugripasafnsins í Eyjum, f. 5. júlí 1939 á Hvanneyri.
| 1. [[Kristján Egilsson (Hvanneyri)|Kristján Egilsson]] forstöðumaður fiska- og náttúrugripasafnsins í Eyjum, f. 5. júlí 1939 á Hvanneyri.

2. [[Egill Egilsson ( | 2. [[Egill Egilsson (húsasmíðameistari)|Egill Egilsson]] húsasmíðameistari, þjónustufulltrúi í Eyjum, f. 23. nóvember 1947 á Heiðarvegi 42.

3. [[Kristinn Árni Egilsson (Heiðarvegi 42)| Kristinn Árni Egilsson]] húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 29. júní 1950 á Heiðarvegi 42.
| 3. [[Kristinn Árni Egilsson (Heiðarvegi 42)| Kristinn Árni Egilsson]] húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 29. júní 1950 á Heiðarvegi 42.

4. [[Heiðar Egilsson (Heiðarvegi 42)|Heiðar Egilsson]] járnsmiður í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.
| 4. [[Heiðar Egilsson (Heiðarvegi 42)|Heiðar Egilsson]] járnsmiður í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.

Lína 31: | Lína 31: | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Hvanneyri]] | [[Flokkur: Íbúar á Hvanneyri]] | ||
[[Flokkur: Íbúar | [[Flokkur: Íbúar við Vestmannabraut]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Heiðarveg]] | [[Flokkur: Íbúar við Heiðarveg]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Hólagötu]] | [[Flokkur: Íbúar við Hólagötu]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Hraunbúðum]] | [[Flokkur: Íbúar í Hraunbúðum]] | ||
[[Flokkur: Íbúar við Dalhraun]] | [[Flokkur: Íbúar við Dalhraun]] |
Núverandi breyting frá og með 7. febrúar 2024 kl. 13:24
Egill Axel Árnason vélstjóri, útgerðarmaður fæddist 18. júní 1911 á Seyðisfirði og lést 9. janúar 1976.
Foreldrar hans voru Árni Þorkelsson í Nóatúni á Seyðisfirði 1910, síðar bóndi og trésmiður á Látrum í Aðalvík og útgerðarmaður í Skáladal, en síðast í Eyjum, f. 31. ágúst 1882 og Anna Kristín Eyjólfsdóttir ráðskona hans, síðar húsfreyja á Látrum og Skáladal í N.-Ísafj.s. og síðast í Eyjum, f. 17. júlí 1886, d. 1. apríl 1952.
Egill var hjá frændfólki sínu á Látrum í Sléttuhreppi 1920, fór til sjós 14 ára, var vinnumaður á Hesteyri 1930.
Hann lauk minna mótorvélstjóraprófi á Ísafirði 1935.
Egill fluttist til Eyja og var vélstjóri, eignaðist fjórðungshlut í Metu VE 236 1950 og átti til 1959. Hann var vélstjóri á henni frá 1950-1961, en þá hét hún orðið Haförn VE 23. Eftir það vann hann hjá ýmsum, á nokkrum kaupskipum, t.d. ms. Selfossi hjá Eimskipafélaginu.
Egill var lengi í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja og gjaldkeri þess í nokkur ár.
Hann var heiðraður af Sjómannadagsráði 1972.
Þau Guðrún giftu sig 1940, eignuðust 5 börn. Þau bjuggu á Hvanneyri við fæðingu Kristjáns 1939, fluttust að Heiðarvegi 42 1946, síðar að Hólagötu 19. Þau bjuggu í Reykjavík í og eftir Gos í 2-3 ár, en fluttust þá til Eyja. Egill var veill og fór á Hraunbúðir, en Guðrún bjó á Hólagötu 19 um skeið, síðan á Hásteinsvegi 60, (Blokkinni) og síðast á Kleifahrauni 1a.
Egill lést 1976 og Guðrún 1994.
Kona Egils, (28. desember 1940), var Guðrún Magnússína Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 2. janúar 1919, d. 15. apríl 1994.
Börn þeirra:
1. Kristján Egilsson forstöðumaður fiska- og náttúrugripasafnsins í Eyjum, f. 5. júlí 1939 á Hvanneyri.
2. Egill Egilsson húsasmíðameistari, þjónustufulltrúi í Eyjum, f. 23. nóvember 1947 á Heiðarvegi 42.
3. Kristinn Árni Egilsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 29. júní 1950 á Heiðarvegi 42.
4. Heiðar Egilsson járnsmiður í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.
5. Hrönn Egilsdóttir leikskólastjóri í Eyjum, f. 1. janúar 1955 að Heiðarvegi 42.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Kristján Egilsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.