„Guðlaug Einarsdóttir (Höfðabrekku)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðlaug Einarsdóttir''' á Höfðabrekku og víðar, húsfreyja fæddist 28. september 1892 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum og lést 20. október 1990.<br> Foreldrar hennar voru Einar Einarsson bóndi, sýslunefndarmaður, f. 1852, d. 16. maí 1901, drukknaði í Eyjaferð, og kona hans Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1858, d. 18. október 1904. Guðlaug var með foreldrum sínum, en faðir hennar drukknaði í sjóslysinu suðaustur...) |
Ekkert breytingarágrip Merki: Síðasta breyting handvirkt tekin til baka |
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 25. janúar 2024 kl. 15:13
Guðlaug Einarsdóttir á Höfðabrekku og víðar, húsfreyja fæddist 28. september 1892 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum og lést 20. október 1990.
Foreldrar hennar voru Einar Einarsson bóndi, sýslunefndarmaður, f. 1852, d. 16. maí 1901, drukknaði í Eyjaferð, og kona hans Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1858, d. 18. október 1904.
Guðlaug var með foreldrum sínum, en faðir hennar drukknaði í sjóslysinu suðaustur af Klettsnefi 1901. Hún var með ekkjunni móður sinni á Rauðafelli 1901, vinnukona í Steinum 1910.
Guðlaug flutti til Eyja 1911.
Þau Sigurjón giftu sig 1917, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hólum við Hásteinsveg 14, á Höfðabrekku við Faxastíg 15 1920 og enn 1928, á Vestmannabraut 74 1930 og 1949.
Sigurjón lést 1964.
Guðlaug var með Ólafi syni sínum á Vestmannabraut 74 1972 og að síðustu með honum á Hólagötu 45.
Guðlaug lést 1990.
I. Maður Guðlaugar, (10. nóvember 1917), var Sigurjón Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 17. febrúar 1894 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 7. júní 1964.
Börn þeirra:
1. Einar Þorberg Sigurjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 7. janúar 1920 á Höfðabrekku, d. 14. október 1998.
2. Ólafur Sigurjónsson sjómaður, vélstjóri, f. 9. janúar 1928 á Höfðabrekku, d. 5. maí 2008.
Fósturbarn hjónanna var
3. Klara Jóhannesdóttir, f. 27. september 1909 á Seyðisfirði, d. 23. janúar 1923 á Höfðabrekku. Foreldrar hennar voru Jóhannes Sveinsson og Elín Júlíana Sveinsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.