Guðlaug Einarsdóttir (Höfðabrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Einarsdóttir á Höfðabrekku og víðar, húsfreyja fæddist 28. september 1892 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum og lést 20. október 1990.
Foreldrar hennar voru Einar Einarsson bóndi, sýslunefndarmaður, f. 1852, d. 16. maí 1901, drukknaði í Eyjaferð, og kona hans Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1858, d. 18. október 1904.

Guðlaug var með foreldrum sínum, en faðir hennar drukknaði í sjóslysinu suðaustur af Klettsnefi 1901. Hún var með ekkjunni móður sinni á Rauðafelli 1901, vinnukona í Steinum 1910.
Guðlaug flutti til Eyja 1911.
Þau Sigurjón giftu sig 1917, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hólum við Hásteinsveg 14, á Höfðabrekku við Faxastíg 15 1920 og enn 1928, á Vestmannabraut 74 1930 og 1949.
Sigurjón lést 1964.
Guðlaug var með Ólafi syni sínum á Vestmannabraut 74 1972 og að síðustu með honum á Hólagötu 45.
Guðlaug lést 1990.

I. Maður Guðlaugar, (10. nóvember 1917), var Sigurjón Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 17. febrúar 1894 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 7. júní 1964.
Börn þeirra:
1. Einar Þorberg Sigurjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 7. janúar 1920 á Höfðabrekku, d. 14. október 1998.
2. Ólafur Sigurjónsson sjómaður, vélstjóri, f. 9. janúar 1928 á Höfðabrekku, d. 5. maí 2008.
Fósturbarn hjónanna var
3. Klara Jóhannesdóttir, f. 27. september 1909 á Seyðisfirði, d. 23. janúar 1923 á Höfðabrekku. Foreldrar hennar voru Jóhannes Sveinsson og Elín Júlíana Sveinsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.