„Oddný Garðarsdóttir (meðhjálpari)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Oddný Þorgerður Garðarsdóttir''' húsfreyja fæddist 14. febrúar 1956.<br> Foreldrar hennar voru Garðar Þorgrímsson frá Selnesi á Breiðdalsvík, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 9. október 1932, d. 4. ágúst 2022, og kona hans María Karólína Gunnþórsdóttir frá Skálateigi í Norðfirði, húsfreyja, f. 20. janúar 1937, d. 10. janúar 2008. Oddný ólst upp hjá foreldrum sínum.<br> Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1973.<...) |
m (Verndaði „Oddný Garðarsdóttir (meðhjálpari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 28. nóvember 2023 kl. 11:30
Oddný Þorgerður Garðarsdóttir húsfreyja fæddist 14. febrúar 1956.
Foreldrar hennar voru Garðar Þorgrímsson frá Selnesi á Breiðdalsvík, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 9. október 1932, d. 4. ágúst 2022, og kona hans María Karólína Gunnþórsdóttir frá Skálateigi í Norðfirði, húsfreyja, f. 20. janúar 1937, d. 10. janúar 2008.
Oddný ólst upp hjá foreldrum sínum.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1973.
Oddný vann verslunarstörf, var á Breiðdalsvík við fiskvinnslu frá 1977 uns hún flutti til Eyja 1981. Þar var hún meðhjálpari um skeið. Í Reykjavík hefur hún unnið í kirkjuhúsinu við Bústaðakirkju.
Oddný eignaðist barn með Þorsteini Stefáni Eiríkssyni 1975.
Þau Yngvi Sigurður giftu sig 1984, eignuðust þrjú börn, en misstu yngsta barnið í æsku þess. Þau bjuggu við Helgafellsbraut 17, fluttu úr Eyjum til Reykjavíkur 2017, búa við Dunhaga 17 í Rvk.
I. Barnsfaðir Oddnýjar er Þorsteinn Stefán Eiríksson, f. 6. september 1965.
Barn þeirra:
1. Garðar Þorsteinsson kennari á Akureyri, f. 28. mars 1975. Kona hans Rannveig Sigurðardóttir.
II. Maður Oddnýjar, (2. júní 1984), er Yngvi Sigurður Sigurgeirsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 6. desember 1955 á Boðaslóð 24.
Börn þeirra:
1. Sigurbjörg Yngvadóttir kennari, skjalastjóri, f. 12. desember 1980. Maður hennar Jón Gunnar Erlingsson
2. Kári Yngvason tölvunarfræðingur í Reykjavík, f. 23. maí 1987. Sambúðarkona hans Ingibjörg Ólafsdóttir.
3. Erlingur Geir Yngvason, f. 23. júlí 1994, d. 26. febrúar 2000.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið, minning Garðars og Maríu Karólínu.
- Oddný.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.