„Karl Guðmundsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 26: | Lína 26: | ||
Hann hóf ungur sjómennsku, tók hið meira vélstjórnarpróf hjá Fiskifélagi Íslands og síðar hið minna fiskimannapróf í Eyjum.
| Hann hóf ungur sjómennsku, tók hið meira vélstjórnarpróf hjá Fiskifélagi Íslands og síðar hið minna fiskimannapróf í Eyjum.

Karl var fyrst á Höfrungi, síðan á Tjaldi og Guðrúnu.
| Karl var fyrst á Höfrungi, síðan á Tjaldi og Guðrúnu.

Þá var hann skipstjóri á Gottu, en 1962 eignaðist hann Hafliða VE-13 ásamt [[Ármann Böðvarsson ( | Þá var hann skipstjóri á Gottu, en 1962 eignaðist hann Hafliða VE-13 ásamt [[Ármann Böðvarsson (Ásum)|Guðmundi ''Ármanni'' Böðvarssyni]] vélstjóra og gerðu þeir hann út til hins síðasta. Hann var seldur 1988.

Karl var í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi um skeið.
| Karl var í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi um skeið.

Þau Símonía giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á [[Þrúðvangur|Þrúðvangi við Skólaveg 22]], voru komin á [[Brekastígur|Brekastíg 25]] 1947 og síðar á [[Sóleyjargata|Sóleyjargötu 4]].
| Þau Símonía giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á [[Þrúðvangur|Þrúðvangi við Skólaveg 22]], voru komin á [[Brekastígur|Brekastíg 25]] 1947 og síðar á [[Sóleyjargata|Sóleyjargötu 4]].

Lína 33: | Lína 33: | ||
I. Kona Guðmundar ''Karls'', (23. október 1943), var [[Símonía Pálsdóttir|Símonía Valgerður Pálsdóttir]] húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í [[Langholt]]i, d. 25. febrúar 1878.
| I. Kona Guðmundar ''Karls'', (23. október 1943), var [[Símonía Pálsdóttir|Símonía Valgerður Pálsdóttir]] húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í [[Langholt]]i, d. 25. febrúar 1878.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. [[Ingi Páll Karlsson]] sjómaður, f. 8. júní 1945 á Skólavegi 22. Kona hans [[Svana | 1. [[Ingi Páll Karlsson]] sjómaður, f. 8. júní 1945 á Skólavegi 22. Kona hans [[Svana Anita Mountford (Vatnsdal)|Svana Anita Mountford]].

2. [[Marta Karlsdóttir]] húsfreyja, rekur ræstingafyrirtæki í Eyjum, f. 15. september 1947 á Brekastíg 25. Maður hennar [[Helgi Sigurlásson]].
| 2. [[Marta Karlsdóttir]] húsfreyja, rekur ræstingafyrirtæki í Eyjum, f. 15. september 1947 á Brekastíg 25. Maður hennar [[Helgi Sigurlásson]].

3. [[Áróra Karlsdóttir]] starfsmaður sundlaugar í Keflavík, f. 30. apríl 1966 í Reykjavík, óg. | 3. [[Áróra Karlsdóttir]] starfsmaður sundlaugar í Keflavík, f. 30. apríl 1966 í Reykjavík, óg. |
Núverandi breyting frá og með 6. október 2023 kl. 13:59
Guðmundur Karl Guðmundsson fæddist 17. júlí 1922 og lést 25. ágúst 1987. Hann var kvæntur Símoníu Pálsdóttur. Þau bjuggu að Brekastíg 25 um miðja síðustu öld en bjuggu að Sóleyjargötu 4 seinni árin.
Karl var skipstjóri og útgerðarmaður.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:
- Karl veit ég kvíðinn varla,
- köld þó að hríðin gnöldri.
- Guðmundsson lögs á lundinn
- leggur títt siglu-steggja.
- Fjalari halur halar,
- hafs út í bylja kafi.
- Fengsæll með formanns gengi
- fyrðurinn loðnung myrðir.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
Frekari umfjöllun
Guðmundur Karl Guðmundsson skipstjóri fæddist 17. júlí 1922 í Sigtúni og lést 25. ágúst 1987 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Guðmundur Gíslason múrari, síðar afgreiðslumaður, f. 19. október 1893 í Nýjabæ í Sandvíkurhreppi, d. 14. maí 1972, og kona hans Marta Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 11. júní 1897 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 6. apríl 1984.
Börn Mörtu og Guðmundar:
1. Guðmundur Karl Guðmundsson, f. 17. júlí 1922 í Sigtúni.
2. Steinunn Svala Guðmundsdóttir, f. 24. júní 1924 á Svalbarði.
Karl var með foreldrum sínum í æsku.
Hann hóf ungur sjómennsku, tók hið meira vélstjórnarpróf hjá Fiskifélagi Íslands og síðar hið minna fiskimannapróf í Eyjum.
Karl var fyrst á Höfrungi, síðan á Tjaldi og Guðrúnu.
Þá var hann skipstjóri á Gottu, en 1962 eignaðist hann Hafliða VE-13 ásamt Guðmundi Ármanni Böðvarssyni vélstjóra og gerðu þeir hann út til hins síðasta. Hann var seldur 1988.
Karl var í stjórn Vélstjórafélags Vestmannaeyja og Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi um skeið.
Þau Símonía giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Þrúðvangi við Skólaveg 22, voru komin á Brekastíg 25 1947 og síðar á Sóleyjargötu 4.
Símonía lést 1978 og Karl 1987.
I. Kona Guðmundar Karls, (23. október 1943), var Símonía Valgerður Pálsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1925 í Langholti, d. 25. febrúar 1878.
Börn þeirra:
1. Ingi Páll Karlsson sjómaður, f. 8. júní 1945 á Skólavegi 22. Kona hans Svana Anita Mountford.
2. Marta Karlsdóttir húsfreyja, rekur ræstingafyrirtæki í Eyjum, f. 15. september 1947 á Brekastíg 25. Maður hennar Helgi Sigurlásson.
3. Áróra Karlsdóttir starfsmaður sundlaugar í Keflavík, f. 30. apríl 1966 í Reykjavík, óg.
Myndir
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 14. desember 1987. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.