„Guðmundur Böðvarsson (húsasmíðameistari)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðmundur Böðvarsson''' frá Þorleifsstöðum á Rangárvöllum, húsasmíðameistari fæddist 15. ágúst 1894 og lést 19. október 1964.<br> Foreldrar hans voru Böðvar Jónsson, bóndi í Koti og á Þorleifsstöðum, f. 14. ágúst 1856, d. 28. janúar 1915, og kona hans Bóel Sigurðardóttir húsfreyja, bóndi, frá Múlakoti í Fljótshlíð, f. 16. desember 1852, d. 30. desember 1921. Guðmundur var með foreldrum sínum í æsku.<br> Hann öðlaðist meis...) |
m (Verndaði „Guðmundur Böðvarsson (húsasmíðameistari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. apríl 2023 kl. 14:57
Guðmundur Böðvarsson frá Þorleifsstöðum á Rangárvöllum, húsasmíðameistari fæddist 15. ágúst 1894 og lést 19. október 1964.
Foreldrar hans voru Böðvar Jónsson, bóndi í Koti og á Þorleifsstöðum, f. 14. ágúst 1856, d. 28. janúar 1915, og kona hans Bóel Sigurðardóttir húsfreyja, bóndi, frá Múlakoti í Fljótshlíð, f. 16. desember 1852, d. 30. desember 1921.
Guðmundur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann öðlaðist meistararétindi í húsasmíði, flutti til Eyja 1924, var mjög virkur við byggingaframkvæmdir og rak verkstæði í húsi sínu.
Þau Sigurbjörg giftu sig 1926, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Hásteinsveg 8.
I. Kona Guðmundar, (1926), var Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Sjónarhóli á Stokkseyri, húsfreyja, f. 24. júli 1896 á Háfshóli í Djúpárhreppi, Rang., d. 13. júní 1970.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ármann Guðmundsson húsasmiður, f. 3. janúar 1927, d. 5. júní 2005. Hann bjó síðast í Kríuhólum 4 í Reykjavík.
2. Jónas Guðmundsson byggingameistari, síðar bankastarfsmaður, f. 21. desember 1928, d. 14. mars 1998. Kona hans Ursula Marie Helene Guðmundsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.