„Ingólfur Guðjónsson (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga
m (Ingólfur Guðjónsson færð á Ingólfur Guðjónsson (Oddstöðum)) |
Ekkert breytingarágrip |
||
(13 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[ | ''Sjá [[Ingólfur Guðjónsson|aðgreiningarsíðuna]] fyrir aðra sem hafa borið nafnið „'''Ingólfur Guðjónsson'''“'' | ||
[[Flokkur:Fólk]] | ---- | ||
[[Mynd:Ingólfur Guðjónsson.JPG|thumb|250px|Ingólfur Guðjónsson]] | |||
'''Ingólfur Guðjónsson''' var fæddur 7. febrúar 1917 og lést 16. nóvember 1998. Foreldrar hans voru [[Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)|Guðjón Jónsson]] frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]] og [[Guðrún Grímsdóttir (Oddsstöðum)|Guðrún Grímsdóttir]]. Ingólfur var elstur fjögurra alsystkina. Frá fyrra hjónabandi föður hans átti hann tólf hálfsystkini. Auk þess átti hann tvö uppeldissystkini, [[Hjörleifur Guðnason (Oddsstöðum)|Hjörleif Guðnason]] og [[Jóna Halldóra Pétursdóttir|Jónu Pétursdóttur]]. Ingólfur bjó með móður sinni til æviloka hennar en hún lést árið 1981. Fyrst bjuggu þau á Oddsstöðum en í kringum 1970 byggði Ingólfur nýtt hús í norðanverðu Oddsstaðatúninu. Það hús fór undir hraun. Í miðju gosinu keypti hann þeim húsið að [[Hásteinsblokkin|Hásteinsveg 62]] og fluttu þau heim strax að lokinni yfirlýsingu um goslok. Auk þess reisti hann bústað, nýja Oddsstaði, í [[Ofanleitishraun]]i. | |||
Eftir barnaskólanám lauk Ingólfur námi við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum. Að því loknu hóf hann prentnám í Prentsmiðjunni Eyrúnu í Eyjum árið 1935. Hann lærði hjá [[Þorvaldur Kolbeins|Þorvaldi Kolbeins]] og starfaði þar um árabil. Síðan fluttist hann til Reykjavíkur og vann sem setjari við Prentsmiðju Þjóðviljans allt til ársins 1960. Þá fluttist hann aftur til Vestmannaeyja og hóf fljótlega störf í Útvegsbanka Íslands, síðar Íslandsbanka, og vann þar til ársins 1987. Frá árinu 1989 dvaldist hann í Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra. | |||
Ingólfur gerðist félagi í [[Akóges]] 1943 og var heiðursfélagi þess frá árinu 1986. Hann sat oft í stjórn félagsins. | |||
[[Mynd:Ingólfsbækur.jpg|thumb|250px|Ritverk Halldórs Laxness sem Ingólfur batt inn.]] | |||
Ingólfur hafði mikið gaman af bókum, eins og atvinna hans gefur til kynna. Hann safnaði bókum og átti gott safn bóka. Ekki var það einungis eign bókanna sem hreif hann, heldur einnig lestur þeirra. Hann hafði þó sinn smekk á bókum og flokkaði sumt sem rusl, eftir innihaldi og handbragði. | |||
{{Heimildir| | |||
* Minningargreinar um Ingólf. ''Morgunblaðið.'' 22. nóvember 1998. | |||
}} | |||
[[Flokkur:Athafnafólk]] | |||
[[Flokkur: Prentarar]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Íbúar við Ásaveg]] |
Núverandi breyting frá og með 21. janúar 2023 kl. 12:02
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ingólfur Guðjónsson“
Ingólfur Guðjónsson var fæddur 7. febrúar 1917 og lést 16. nóvember 1998. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson frá Oddsstöðum og Guðrún Grímsdóttir. Ingólfur var elstur fjögurra alsystkina. Frá fyrra hjónabandi föður hans átti hann tólf hálfsystkini. Auk þess átti hann tvö uppeldissystkini, Hjörleif Guðnason og Jónu Pétursdóttur. Ingólfur bjó með móður sinni til æviloka hennar en hún lést árið 1981. Fyrst bjuggu þau á Oddsstöðum en í kringum 1970 byggði Ingólfur nýtt hús í norðanverðu Oddsstaðatúninu. Það hús fór undir hraun. Í miðju gosinu keypti hann þeim húsið að Hásteinsveg 62 og fluttu þau heim strax að lokinni yfirlýsingu um goslok. Auk þess reisti hann bústað, nýja Oddsstaði, í Ofanleitishrauni.
Eftir barnaskólanám lauk Ingólfur námi við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum. Að því loknu hóf hann prentnám í Prentsmiðjunni Eyrúnu í Eyjum árið 1935. Hann lærði hjá Þorvaldi Kolbeins og starfaði þar um árabil. Síðan fluttist hann til Reykjavíkur og vann sem setjari við Prentsmiðju Þjóðviljans allt til ársins 1960. Þá fluttist hann aftur til Vestmannaeyja og hóf fljótlega störf í Útvegsbanka Íslands, síðar Íslandsbanka, og vann þar til ársins 1987. Frá árinu 1989 dvaldist hann í Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra.
Ingólfur gerðist félagi í Akóges 1943 og var heiðursfélagi þess frá árinu 1986. Hann sat oft í stjórn félagsins.
Ingólfur hafði mikið gaman af bókum, eins og atvinna hans gefur til kynna. Hann safnaði bókum og átti gott safn bóka. Ekki var það einungis eign bókanna sem hreif hann, heldur einnig lestur þeirra. Hann hafði þó sinn smekk á bókum og flokkaði sumt sem rusl, eftir innihaldi og handbragði.
Heimildir
- Minningargreinar um Ingólf. Morgunblaðið. 22. nóvember 1998.