„Heiðar Marteinsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Heiðar Bergur Marteinsson''' úr Reykjavík, sjómaður, stýrimaður, kvikmyndatökumaður fæddist þar 25. apríl 1931 og lést 1. janúar 2012.<br> Foreldrar hans voru Marteinn Jón Magnússon Skaftfells kennari í Reykjavík, f. 14. apríl 1903 á Auðnum í Meðallandi, V-Skaft., d. 20. febrúar 1985, og fyrri kona hans Þórunn Björnsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 30. nóvember 1898 í Möðrudal í N-Múl., d. 2. ágúst 1983. Heiðar var með foreldrum sínum,...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Heidar Marteinsson.jpg|thumb|200px|''Heiðar Bergur Marteinsson.]]
'''Heiðar Bergur Marteinsson''' úr Reykjavík, sjómaður, stýrimaður, kvikmyndatökumaður fæddist þar 25. apríl 1931 og lést 1. janúar 2012.<br>
'''Heiðar Bergur Marteinsson''' úr Reykjavík, sjómaður, stýrimaður, kvikmyndatökumaður fæddist þar 25. apríl 1931 og lést 1. janúar 2012.<br>
Foreldrar hans voru Marteinn Jón Magnússon Skaftfells kennari í Reykjavík, f. 14. apríl 1903 á Auðnum í Meðallandi, V-Skaft., d. 20. febrúar 1985, og fyrri kona hans Þórunn Björnsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 30. nóvember 1898 í Möðrudal í N-Múl., d. 2. ágúst 1983.

Núverandi breyting frá og með 31. maí 2022 kl. 17:45

Heiðar Bergur Marteinsson.

Heiðar Bergur Marteinsson úr Reykjavík, sjómaður, stýrimaður, kvikmyndatökumaður fæddist þar 25. apríl 1931 og lést 1. janúar 2012.
Foreldrar hans voru Marteinn Jón Magnússon Skaftfells kennari í Reykjavík, f. 14. apríl 1903 á Auðnum í Meðallandi, V-Skaft., d. 20. febrúar 1985, og fyrri kona hans Þórunn Björnsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 30. nóvember 1898 í Möðrudal í N-Múl., d. 2. ágúst 1983.

Heiðar var með foreldrum sínum, en þau skildu og ólst Heiðar upp á Sólheimum í Grímsnesi.
Hann lauk fiskimannaprófi í Eyjum 1958.
Heiðar var sjómaður frá ungum aldri, var stýrimaður á ýmsum bátum í Eyjum.
Þau Brynja hófu búskap, bjuggu í Stórholti í Reykjavík um tveggja ára skeið.
Þau fluttu til Eyja, giftu sig 1957, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, við Heiðartún, á Háeyri við Vesturveg 11 og í Hrísnesi við Skólaveg 12.
Þau Brynja fluttu að Tjaldbúðum í Staðarsveit á Snæfellsnes 1963, þar sem Heiðar starfaði við lax- og silungseldi. Þar bjuggu þau um sex ára skeið.
Brynja og Heiðar fluttu aftur til Eyja 1969, bjuggu í Birtingarholti. Þau stofnuðu Ljósmyndaþjónustuna Eyjafótó og starfræktu hana til Goss 1973 á Þingvöllum. Þau fluttu aftur til Eyja eftir Gosið og bjuggu í Nykhól og síðan á Faxastíg 25. Heiðar tók mikið af myndum fyrir Sjónvarpið skömmu eftir stofnun þess, bæði kvikar og kyrrar. Hann dvaldi að mestu í Eyjum við myndatökur í Gosinu.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1983, bjuggu síðast á Skeljagranda 2 í Reykjavík, skildu um tíma, fluttu á hjúkrunar- og dvalarheimilið Seljahlíð í Breiðholti.
Brynja lést á Landspítalanum 2009. Heiðar lést 2012.

I. Kona Heiðars, (17. mars 1957), var Brynja Jónína Pálsdóttir frá Héðinshöfða, húsfreyja, iðnverkakona, f. 26. desember 1935 á Þingeyri, d. 19. nóvember 2009.
Barn þeirra:
1. Marteinn Unnar Heiðarsson vélvirki í Reykjavík, f. 14. janúar 1962 í Eyjum. Barnsmæður hans Ingibjörg Eiríksdóttir og Sigurlaug Helgadóttir.

Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 20. janúar 2012. Minning.
  • Prestþjónustubækur.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.